Innlent

Þakkar lífsgæðum landsbyggðarinnar í túnfæti Reykjavíkur fyrir mikinn vöxt

Tryggvi Páll Tryggvason og Birgir Olgeirsson skrifa
Hveragerði vex og vex.
Hveragerði vex og vex. Visir/Vilhelm

Íbúum Hveragerðis hefur fjölgað um hátt í fimmtung á þremur árum og tvö hundruð íbúðir eru nú í byggingu til að mæta þeirri fjölgun. Bæjarstjórinn reiknar með að bæjarbúar verði orðnir fimm þúsund eftir tíu ár, en þeir voru 2.777 um áramótin síðustu.

Þau sem aka þjóðveg 1 austur Hellisheiðina og niður Kambana hafa ef til vill tekið eftir því að Hveragerði stækkar nú ört, svo ört að byggingarland bæjarins nær nánast að veginum niður Kambana.

Þar er nú verið að útbúa nýtt hverfi, sem hefur einmitt fengið heitið Kambaland. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, ræddi við Birgi Olgeirsson fréttamann um málið í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

„Ég held að eitt aðalatriðið sé það að hér býðst húsnæði á hagstæðari kjörum en á höfuðborgarsvæðinu. Það skiptir líka máli hér bjóðast fólki lífsgæði landsbyggðarinnar en samt í túnfæti Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins. Hér getum við notið náttúru, þeirra gæða sem að hún gefur og göngustíga og umhverfis, um leið og við getum sótt þjónustu til Reykjavíkur á þrjátíu mínútum,“ sagði Aldís.

Eruð þið að sjá þessa þróun halda áfram og eruð þið að gera ráð fyrir henni á einhvern hátt?

„Já, ég sé ekkert í kortunum annað en að þetta haldi áfram. Hér er verið að byggja mjög mikið. Bara þar sem við stöndum núna, í Kambalandinu, er verið að byggja um tvö hundruð íbúðir í dag. Við ætlum okkur að úthluta á næsta ári einum 150 í viðbót. Á öðrum stöðum í bæjarfélaginu eru einhverjar tvö hundruð íbúðir í farvatninu.“

Hver verður þá íbúafjöldi Hveragerðis eftir nokkur ár?

„Núna um áramótin erum við að spá að það gæti farið yfir þrjú þúsund og á næstu tíu árum held ég að við förum yfir fimm þúsund.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×