Biður fólk um að koma vinsamlegast ekki til Havaí Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. ágúst 2021 08:29 Ekki koma til Havaí, biðlar Ige. AP/Marco Garcia Ólíkt stjórnvöldum á Íslandi og víðsvegar annars staðar í heiminum hefur ríkisstjóri Havaí biðlað til ferðamanna um að koma vinsamlegast ekki til eyjanna eins og sakir standa.
Ferðalög til Havaí hafa ekki verið bönnuð en David Ige sagði á mánudag að þau væru áhættusöm. „Þetta er ekki góður tími til að heimsækja eyjarnar,“ sagði hann. Hið skæða Delta afbrigði kórónuveirunnar hefur farið eins og eldur í sinu um eyjarnar. Smitum hefur fjölgað um 36 prósent síðustu tvær vikur og spítalainnlögnum um 78 prósent. Í fyrra gripu yfirvöld til þess ráðs að krefjast þess að ferðamenn sættu sóttkví, sem fækkaði mjög komum til eyjanna. Nú hefur aðgengi að bílaleigubílum verið takmarkað og fjöldatakmarkanir eru í gildi á veitingastöðum. Aðeins tíu mega koma saman innandyra og 25 utandyra. „Í mars á síðasta ári, þegar ég bað ferðalanga fyrst að fresta því að heimsækja eyjarnar, fækkaði ferðamönnum um 60 prósent,“ sagði Ige. Í kjölfarið hefðu fyrrnefndar reglur um sóttkví tekið gildi og þá hefði fækkunin náð 99,5 prósentum. Ríkisstjórinn hvatti fólk einnig til að þiggja bólusetningu en þegar hafa 62 prósent íbúa Havaí verið fullbólusett.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira