Að minnsta kosti sextán látnir í blokkinni á Flórída Kjartan Kjartansson skrifar 30. júní 2021 16:13 Björgunarliði tókst að komast afar í rústir Champlain-turnins í gærkvöldi og fann þar fjögur lík og fleiri líkamsleifar. AP/Lynne Sladky Fjögur lík til viðbótar fundust í rústum Champlain-íbúðablokkarinnar á Flórída í gærkvöldi og er staðfest tala látinna nú orðin sextán. Hátt á annað hundrað manns er þí enn saknað tæpri viku eftir að blokkin hrundi.
Fleiri líkamsleifar fundust þegar björgunarliði tókst að komast efst í rústir byggingarinnar en kennsl hafa ekki verið borin á þær ennþá. Nærri því 150 manns er saknað í rústunum. Yfirvöld á Flórída hafa nú óskað eftir aðstoð alríkisstjórnarinnar við að leita í brakinu. Óttast er að óveður sem er spáð á næstu dögum geti sett strik í reikninginn fyrir björgunar- og leitarlið. Ríkissaksóknari í Miami-Dade-sýslu hefur boðað rannsókn á hvernig það kom til að álma Champlain-blokkarinnar í bænum Surfside nærri Miami hrundi í síðustu viku. Ekki liggur fyrir hvort að ákærur gætu verið gefnar út, að sögn Washington Post. Enn liggur ekki fyrir hvað olli því að byggingin hrundi. Forseti húsfélagsins er sagður hafa sent íbúum bréf um versnandi ástand hennar í apríl. Skemmdir sem hafi orðið á því árið 2018 hafi versnað til muna og ástandið ætti eftir að verða enn verra yrði ekki gripið til framkvæmda. Þá hefur verið vitnað í skýrslu verkfræðinga um stórar sprungur í bílakjallara byggingarinnar þar sem hvatt var til þess að ráðist yrði strax í viðgerðir.
Bandaríkin Húshrun í Miami Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira