„Ég er búinn að vera með markmið síðan ég kláraði Versló, að semja stærsta lag í heimi.“
Pálmi telur að hugarfarið sé lykillinn að hans velgengni og ástæða þessa að hann nær að vinna að tónlistinni í fullu starfi.
„Ég held að það hafi hjálpað mér mikið að vita að það er ekkert annað, mig langar ekkert í nám eða að gera eitthvað annað.“
Hann viðurkennir að höfnun sé aldrei skemmtileg og auðvitað sé erfitt að heyra að lag sem þú lagðir allt þitt í fær ekki spilun einhvers staðar. Hann lætur það samt aldrei draga úr sér.
Í hlaðvarpsþættinum Bransakjaftæði ræðir Pálmi Ragnar um starfið sitt, til dæmis um vinnuna með tónlistarkonunni Bríet. Svo talaði hann um Stop Wait Go tímabilið, Nylon samstarfið, tónlistarbransann hér á landi og margt fleira.
. Einnig rekur hann útgáfufyrirtækið Rok Records og býr yfir mikilli þekkingu á tónlistarbransanum. Hann hefur m.a gert tónlist með BRÍET, Glowie, Tómasi Welding og Huginn. Hann stofnaði pródúsentaþríeykið StopWaitGo með Ásgeiri Orra, bróður sínum, og Sæþóri Kristjánssyni. Þeir fluttu til Los Angeles í byrjun síðasta áratugs og skrifuðu undir samning sem þeir hefðu ekki átt að gera. Hér segir Pálmi frá því hvað hann hefur lært af slæmum samningum, markmiðum sínum sem pródúsent, hvernig sé best að gefa út tónlist og margt fleira.
Þáttinn má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Undarlegt fyrirkomulag
Einnig barst talið að Eurovision og segir Pálmi Ragnar að RÚV sitji á peningum sem ættu að renna til íslenskra listamanna.
„Mér finnst mjög undarlegt að RÚV taki í raun og veru í kringum helminginn, og það var á einhverjum tímapunkti hundrað prósent, útgáfuréttar lags sem er samið fyrir keppnina.“
Pálmi segir að RÚV haldi vissulega keppnina en sé samt líka opinbert hlutafélag í fjárlögum.
„Af hverju á íslenska ríkið, bókstaflega að eiga helminginn af masternum mínum?“
Bergþór Másson þáttastjórnandi tekur Think about things sem dæmi, sem ætti að hafa skilað um 35 milljónum í tekjur bara í gegnum Spotify spilanir.
„Við erum að tala þá um að RÚV hafi grætt 17,5 milljónir er það ekki?“
Pálmi staðfestir það og segir þetta vera galið.
„Mér finnst að RÚV sem menningarstofnun eigi að líta á þetta sem tækifæri fyrir það að fá rjómann af íslenskum lagahöfundum og pródúsentum og artistum inn í þessa keppni, en ekki horfa á þetta sem tækifæri til þess að græða á lítið þekktum lagahöfundum og pródúsentum og listamönnum sem kunna ekki leikinn.“

Bransakjaftæði er hlaðvarpshluti Tónatals, sem miðar að því að efla þekkingu þeirra sem starfa við tónlist og stuðningsumhverfi þeirra. Bransakjaftæði er unnið í samvinnu við Útvarp 101 og Bergþór Másson er þáttarstjórnandi annarrar seríu. Tónatal er samstarfsverkefni ÚTÓN, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, STEF, SFH og Íslandsstofu. Þættirnir birtast vikulega á Spotify og Vísi en jafnframt verða þeir spilaðir á Útvarp 101 á miðvikudögum klukkan 16.