Örlög Löfven ráðast innan skamms Atli Ísleifsson skrifar 21. júní 2021 06:56 Umræður standa nú yfir í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar um vantrauststillöguna. epa/Mika Schmidt Sænska þingið greiðir innan skamms atkvæði um vantrauststillögu gegn forsætisráðherranum Stefan Löfven.
Fréttaskýrendur segja miklar líkur á að tillagan verði samþykkt sem gæti þá annað hvort leitt til tilrauna um nýja stjórnarmyndun eða þá að boðað verði til aukakosninga í landinu. Kemur þing saman klukkan átta að íslenskum tíma til að ræða og greiða atkvæði um tillöguna. Svíþjóðardemókratar leggja fram vantrauststillöguna, en auk þeirra hafa þingflokkar Moderaterna, Kristilegra demókrata og Vinstriflokksins sagst styðja tillöguna. Ríkisstjórnin hefur þurft að treysta á stuðning Vinstriflokksins sem hefur nú snúist gegn stjórn forsætisráðherrans vegna ákvörðun ríkisstjórnar hans um að aflétta takmarkanir á hámarksleiguverð í nýju húsnæði. Ekki hefur verið boðað til aukakosninga í Svíþjóð frá árinu 1958, en lög landsins kveða á um að jafnvel þó að haldnar séu aukakosningar þá hafi það ekki áhrif á að kosningar fari fram á fjögurra ára fresti. Kosningar munu því fara fram í september á næsta ári líkt og til stóð, burtséð frá því hvort að boða þurfi til aukakosninga nú. Fari svo að tillagan verði samþykkt verður Löfven fyrsti forsætisráðherra Svíþjóðar til að verða bolað úr embætti með þessum hætti.
Svíþjóð Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira