Gekk berserksgang í sameign fjölbýlishúss Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. júní 2021 06:43 Vísir/Egill Töluvert annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt, meðal annars vegna óspekta bæði innan- og utandyra.
Um klukkan 17 var lögregla kölluð til vegna manns sem gekk berserksgang í sameign fjölbýlishúss í Grafarvogi. Hann var í annarlegu ástandi, sinnti ekki fyrirmælum lögreglu og var með ógnandi tilburði. Maðurinn var því handtekinn og vistaður í fangageymslu. Stuttu seinna barst tilkynning um mann sem lá hreyfingarlaus á jörðinni í póstnúmerinu 108. Í ljós kom að viðkomandi svaf ölvunarsvefni og þegar lögreglu tókst að vekja hann hélt hann sína leið. Um kl. 21 var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi sem var að angra viðskiptavini á veitingastað í Hlíðunum. Þegar lögregla mætti á vettvang neitaði maðurinn að gefa upp persónuupplýsingar og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar gaf hann sig og fór svo frjáls ferða sinna. Eftir miðnætti ók leigubílstjóri inn á bílastæði lögreglu í miðborginni vegna farþega sem höfðu frammi hótanir í hans garð. Þá óskaði öryggisvörður aðstoðar lögreglu vegna ölvaðs einstaklings í bílastæðahúsi. Rétt fyrir kl. 3 í nótt var kvartað vegna hávaða utandyra vegna knattspyrnuiðkunar. Þá var kvartað vegna samkvæmishávaða í heimahúsum í Kópavogi og Hafnarfirði. Í Hafnarfirði var einnig tilkynnt um innbrot í heimahús og þjófnað á fellihýsi, sem stóð læst fyrir utan heimili eigandans.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Innlent Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Staðan miklu alvarlegri þegar vígvöllurinn er stærri Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Sjá meira