Á dagskrá eru rúmlega sjötíu viðburðir og getur almenningur sótt viðburðina sér að kostnaðarlausu. Hægt er að fylgjast með setningarathöfninni í spilaranum hér fyrir neðan en að henni lokinni verður opið hús í Nýsköpunarsetri Vísindagarða sem er jafnframt heimili hátíðarinnar.
„Hátíðinni er ætlað að vekja athygli á nýsköpun sem á sér stað á Íslandi innan stofnana, fyrirtækja og sprotafyrirtækja þar sem framúrstefnulegar lausnir, ólík sköpunarferli og kraftmiklir frumkvöðlar fá notið sín,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.
Dagskrá setningarathafnar
- Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, setur hátíðina
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra flytur opnunarerindi
Látum raddir frumkvöðla heyrast
- Stefanía Bjarney Ólafsdóttir, stofnandi Avo
- Haraldur Þórir Hugosson, hagfræðingur
- Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri EIMUR
- Kjartan Þórsson, stofnandi Nordverse
Helstu viðburðir Nýsköpunarviku
- Húsnæðis og mannvirkjastofnun, Byggingarvettvangurinn, Samtök iðnaðarins og Verkís verða með viðburðinn Nýsköpun í mannvirkjagerð
- Háskóli Íslands verður með fjölda viðburða og mun meðal annars bjóða upp á gönguferð um Reykjavíkurhöfn þar sem fjallað verður um Nýsköpun í sjávarútvegi
- Matarboðið er sá hluti Nýsköpunarvikunnar þar sem framsæknir matarfrumkvöðlar eru paraðir saman við veitingastaði. Skál! býður upp á nýsköpunarmatseðil í samstarfi við sprotafyrirtækin Jökla og Vaxa. Fiskmarkaðurinn og Nordic Wasabi slá höndum saman, Von Mathús og Vegangerðin munu bjóða upp á Tempeh Pop-up! Og á Bjórveldishátíðinni á Kex munu handverksbruggarar kynna nýjasta nýtt
- Á Norðurlandi verður haldin Nýsköpunarvika í boði Samtaka Sveitarfélaga á Norðurlandi en þar verða í boði nýsköpunarhádegi, rafræn opin hús í frumkvöðlasetrum og hugmyndasamkeppni um hvernig auka megi fullvinnslu afurða
- Feed the Viking stendur fyrir frumkvöðlasjósundi í Nauthólsvík og smakk á bakka af nýjustu vörunum þeirra
- Vinningshafar í hönnunarsamkeppni Össurar og LHÍ kynna hugmyndir sínar
- Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins tekur höndum saman við Nýsköpunarnefnd FKA og stendur fyrir viðburðinum The Dangerous myths of empowerment for women
- ORF líftækni leiðir okkur inn í spennandi heim erfðatækni og stofnfrumuræktunar á viðburðinum Er hægt að rækta kjöt án þess að drepa dýr?
Hægt er að skoða dagskránna í heild sinni á vef Nýsköpunarviku.