WBA fallið úr úrvalsdeildinni eftir tap gegn Arsenal Arnar Geir Halldórsson skrifar 9. maí 2021 20:04 Fallinn vísir/getty West Bromwich Albion mun leika í B-deild á næstu leiktíð en það varð endanlega ljóst þegar liðið tapaði fyrir Arsenal í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Ensku ungstirnin sáu um að koma Arsenal í forystu þegar Emile Smith Rowe skoraði eftir sendingu frá Bukayo Saka eftir tæplega hálftíma leik. Skömmu síðar tvöfaldaði Nicolas Pepe forystuna með góðu skoti utan vítateigs. Brasilíumenn sáu um markaskorun í síðari hálfleiknum en Matheus Pereira gaf WBA líflínu þegar hann minnkaði muninn í 2-1 á 67.mínútu. Það var hins vegar Willian sem gerði endanlega út um leikinn með marki í uppbótartíma. Lokatölur 3-1 fyrir Arsenal. Enski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn