Allar keðjurnar munu bjóða upp á sérstök tilboð og afslætti til að reyna að lokka til sín innlenda ferðamenn.
Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, vonast til að framundan sé annað gott ferðasumar sem verði borið uppi af innlendum ferðamönnum.
„Við munum stíla inn á Íslendinginn aftur, erum að selja tilboðspakka með afþreyingu og fleira og bjóða fólki upp á að kaupa saman nætur á fleiri en einu hóteli svipað og við vorum með í gangi í fyrra.“
Þó megi reikna með því að afslættirnir verði eitthvað hóflegri en á síðasta ári.

„Í fyrra þá var annað andrúmsloft og við vorum að fá ríkisstyrki og fleira en við verðum samt með mjög flott tilboð í ár.“
Alls eru sautján hótel rekin undir hatti Íslandshótela en einungis fjögur þeirra eru opin í dag. Davíð segir að rekstur þeirra hafi gengið betur í vetur en stjórnendur þorðu að vona og dæmi um að hótelin á landsbyggðinni hafi verið fullbókuð flestar helgar.
Erfitt að spá fram í tímann
Skjótt skipast veður í lofti og segir Davíð að Íslandshótel hafi þurft að endurskoða sumaráætlanir sínar eftir að smitum fór að fjölga fyrir um tveimur vikum og stjórnvöld hertu takmarkanir.
Hann bætir við að aukinnar bjartsýni hafi gætt þegar ríkisstjórnin gaf út að tekið yrði á móti erlendum ferðamönnum frá ríkjum utan Schengen á borð við Bretland og Bandaríkin sem gætu framvísað bólusetninga- eða mótefnavottorði.

„Þá vorum við alveg klár í að ræsa upp stóran hluta af hótelunum okkar en við verðum aðeins að endurskoða það núna og sjá bara hvernig þessu fram vindur,“ segir Davíð.
Hann gerir ráð fyrir því að minnst tíu hótel verði opin í sumar til að anna eftirspurninni á innanlandsmarkaðnum.
„En svo er spurning með landamærin og erlenda ferðamanninn og hvort við getum mögulega opnað enn fleiri.“
Skíðafólk og göngugarpar bjargað vetrinum
„Við munum gefa fólki kost á að geta bókað hjá okkur á aðgengilegum verðum fyrir innanlands traffíkina. Tilboðum okkar var mjög vel tekið í fyrra, við fengum mikið af ánægðum Íslendingum í hús og vonum bara að það verði aftur svona gott Íslendingasumar,“ segir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels.

Líkt og síðasta sumar verður hægt að bóka gistingu á lægra verði en í hefðbundnu árferði og tekur verðlagningin mið af nýtingu gistirýma á hverjum stað fyrir sig. Þá er hótelkeðjan, sem rekur fjórtán hótel víðs vegar um landið, farin að selja svokölluð gistináttabréf þar sem fólki býðst að kaupa tvær til átta nætur á hagstæðu verði.
Magnea segir að herbergjanýtingin hafi verið betri í vetur en reiknað hafi verið með og mikið verið að gera á hótelunum um helgar og í vetrarfríum.
„Það hefur verið að bókast vel í vetur í skíðin og fjallaferðir og alls konar þannig að það hefur tekið dálítið plássið núna en núna þegar það fer að vora þá fara að koma tilboð fyrir sumarið.“
Íslendingar geti ekki haldið uppi hótelrekstri í Reykjavík
Kristófer Oliversson, eigandi og framkvæmdastjóri Center Hotels, segir að ýmsir tilboðspakkar muni standa Íslendingum til boða í sumar. Hann sé þó ekki búinn að afskrifa það að hingað komi erlendir ferðamenn.
Center Hotels reka átta hótel í miðbæ Reykjavíkur en er nú einungis með eitt opið líkt og síðasta vor.
Kristófer segir að hótel í Reykjavík hafi farið sérstaklega illa út úr faraldrinum þar sem Íslendingar fari frekar út á land þegar þeir vilji gera sér dagamun og leiti síður í miðbæ Reykjavíkur.

„Við auðvitað leggjum við mikið upp úr því að bjóða Íslendinga velkomna en því miður erum við bara ekki nógu mörg til að halda uppi hótelrekstri í Reykjavík þannig að við byggjum allan okkar rekstur á erlendum ferðamönnum.“
„Okkar vonir eru bundnar við að það standi sem gefið hefur verið út að það verði mögulegt að koma hingað til lands með ströngum kröfum og smám saman fari að losna um þetta.“
Þar vísar Kristófer til þeirrar stefnu stjórnvalda að hleypa inn erlendum ferðamönnum sem geti sýnt fram á að þeir hafi verið bólusettir við Covid-19 eða með mótefni.
Vonast til að geta haft tvö hótel opin
Allt byggist þetta á flugframboði til landsins og því segir Kristófer það hafa verið gleðifregnir þegar bandaríska flugfélagið Delta Airlines tilkynnti nýverið að það hyggist hefja daglegt flug til Keflavíkur í maí frá þremur áfangastöðum í Bandaríkjunum.

Þó mikil óvissa ríki áfram um þróun mála í ferðaþjónustunni viðurkennir Kristófer að það sé þó mikið bjartara yfir núna en síðasta vor.
„Það var bara ekkert framundan á þessum tíma í fyrra, maður var smám saman að átta sig á því í mars-apríl að þeta yrðu ekki tveir til þrír mánuðir heldur tvö til þrjú misseri.“
Center Hotels er nú með 80 starfsmenn á hlutabótum og gerir Kristófer ráð fyrri því að ráða á bilinu 250 til 300 starfsmenn þegar bókunarstaðan kemst í eðlilegra horf. Hann vill þó fara hægt í sakirnar og vonast nú til að geta haft tvö hótel opin í sumar.