Jökull lék allan leikinn í svekkjandi tapi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. mars 2021 20:59 Jökull Andrésson lék allan leikinn í 2-1 tapi Exeter í kvöld. Getty/Jacques Feeney Markvörðurinn Jökull Andrésson gat ekki komið í veg fyrir 2-1 tap Exeter City gegn Oldham Athletic í ensku D-deildinni í kvöld. Daníel Leó Grétarsson sat allan tímann á varamannabekk Blackpool er liðið vann 3-1 sigur á Peterborough United.
Hefði Harry Kewell, fyrrverandi þjálfari Oldham, fengið það sem hann vildi fyrir leiktíðina þá hefði hann ef til vill verið enn í starfi í leik kvöldsins. Kewell vildi nefnilega fá markvörðinn Sindra Kristinn Ólafsson til liðs við félagið frá Keflavík. Allt kom fyrir ekki og var ekki um Íslendingaslag að ræða er Exeter heimsótti Boundary Park í kvöld. Kyle Jameson kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik og Alfie McCalmont tvöfaldaði forystuna þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Jack Sparkes minnkaði muninn fyrir Exeter en nær komust gestirnir ekki og lauk leiknum því með 2-1 sigri heimamanna. Oldham siglir lygnan sjó í 17. sæti deildarinnar með 45 stig á meðan Exter er í harðri baráttu um að komast í umspilssæti. Jökull og félagar eru sem stendur í 8. sæti, fjórum stigum frá Newport County sem er í 7. sæti deildarinnar. Liðin í 4. til 7. sæti fara í umspil um að komast upp í C-deildina. Daníel Leó var eins og áður sagði allan tímann á bekknum í mikilvægum 3-1 sigri Blackpool í kvöld. Sigurinn lyftir Blackpool upp í 6. sæti – sem er síðasta umspilssætið í C-deildinni. Peterborough er í 2. sæti með 66 stig, aðeins tveimur stigum meira en Sunderland sem er í 3. sæti með leik til góða. Efstu tvö lið deildarinnar fara beint upp í ensku B-deildina.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira