Heilsugæslan tók yfir leghálskimanir frá Krabbameinsfélaginu um áramót. Fyrir flutning voru leghálssýnin greind hér á landi en við flutninginn var ákveðið að senda þau til greiningarfyrirtækis í Danmörku. Ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af þessum flutningi. Enn séu þúsundir sýna ógreind og kerfið sé flóknara en áður. Þá hefur Félag íslenskra kvensjúkdóma-og fæðingalækna og félag lífeindafræðinga komist að þeirri niðurstöðu að greining sýnanna sé best borgið hér á landi.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra blæs á þessa gagnrýni.
„Rannsóknir leghálssýna fara fram á stofu sem er með aðferðir sem eru með því því besta sem gerist í heiminum. Með flutningi krabbameinsskoðunarinnar til heilsugæslunnar erum við komin með aðgengilegri þjónustu en áður, ódýrari og öruggari“ segir Svandís
Heilbrigðisráðuneytið hefur gert þriggja ára samning við danska greiningaraðilann og er hann uppsegjanlegur með þriggja mánaða fyrirvara.
„Ef til þess kemur að greiningargetan verður nægilega góð hérlendis þá kann að vera að það verði teknar nýjar ákvarðanir. Aðalatriðið er að konur séu öruggar. Samkvæmt samningi sem heilbrigðisráðuneytið gerði við rannsóknarstofuna þá skuldbindur stofan sig til að senda niðurstöðu innan þriggja vikna og þær munu birtast á vefnum Heilsuvera,“ segir Svandís.
Við flutning skimanna til Heilsugæslunnar voru um 2400 sýni ógreind og send út. Ekki er komin niðurstaða frá danska greiningaraðilanum.
„Þetta eru sýni sem lentu milli kerfa. Það er verið að vinna þau upp. Forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu sagði við mig að um helmingur sýnanna væri komin í hús og ég vona að þetta verði unnið fljótt og örugglega,“ segir Svandís.