Sannfærð um að eitthvað hafi komið fyrir á niðurleið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. febrúar 2021 14:18 John Snorri og Lína Móey þegar hann kom til landsins árið 2017 eftir að hafa toppað K2 að sumarlagi. Lífsspor K2 Lína Móey Bjarnadóttir, eiginkona fjallgöngukappans Johns Snorra Sigurjónssonar, og fleiri fjölskyldumeðlimir telja að John Snorri, Muhammad Ali Sadpara og Juan Palo Mohr hafi komist á topp K2.
Á niðurleiðinni hafi eitthvað komið upp á sem hafi orðið til þess að þeir skiluðu sér ekki niður fjallið. Fjallgöngumennirnir voru í dag úrskurðaðir látnir af yfirvöldum í Pakistan. Lína Móey sendi frá sér tilkynningu á ensku á Facebook í dag þar sem hún segist þakklát öllum þeim sem hafa tekið þátt í leitar- og björgunaraðgerðum vegna mannanna þriggja undanfarna tíu daga. „Þeir voru allir þrír öflugir fjallgöngukappar sem vildu, gátu og með hugrekki til að skrifa sig á spjöld sögunnar með því að standa á toppi K2 að vetrarlagi,“ segir fjölskyldan í færslunni. Our press releases this morning We are greatful to all of those participating in the search and rescue operations of...Posted by Lína Móey on Thursday, February 18, 2021 „Miðað við tímasetninguna á því þegar síðast náðist samband við síma Johns Snorra erum við sannfærð um að mennirnir þrír hafi allir komist á topp K2 og því hafi eitthvað komið upp á þegar þeir voru á leiðinni niður.“ Hún segir fjölskyldu Johns Snorra vilja senda þakklætiskveðju til yfirvalda í Pakistan, Chile og Íslands fyrir þeirra framlag í leit að þeirra elskuðu. „Enginn vafi leikur á því í okkar huga að umfang leitarinnar og tæknin sem var notuð er fordæmalaus og mun vonandi auka öryggi fjallgöngumanna um heim allan til framtíðar.“ Hjörtun slá í takt Fjölskyldan segir pakistanska herinn hafa sýnt sérstaklega mikinn stuðning á þessum erfiðu tímum með því að sjá af tækjum og mannafla. Ali Sadpara frá Pakistan og John Snorri Sigurjónsson ásamt spænska fjallgöngumanninum Sergi Mingote (til vinstri) sem lést í hlíðum K2 í janúar. „Við þökkum hinum hugrökku pakistönsku hermönnum fyrir kærleik þeirra til Ali, Johns og Juan Pablo.“ Þá bætir fjölskyldan við að vinátta Ali, Sajid sonar hans og Johns sé eitthvað sem fjölskyldan muni varðveita. Í því samhengi sé fjölskyldan full þakklætis að Sajid hafi komist lífs af. „Íslensk hjörtu okkar slá í takt við hjörtu Pakistana og Chile-manna. Við þökkum öllum þeim sem hafa séð af tíma til að leita og hugsa til okkar með stuðningi í formi skilaboða og hugsana á þessum erfiðu tímum. Ali, John og Juan Pablo munu lifa í hjörtum okkar að eilífu.“
John Snorri á K2 Tengdar fréttir John Snorri, Ali og Juan Pablo formlega taldir af Fjallgöngumennirnir John Snorri Sigurjónsson, Ali Sadpara frá Pakistan og Juan Pablo Mohr frá Chile hafa nú formlega verið taldir af hjá pakistönskum yfirvöldum. Þeir höfðu reynt að klífa K2, en ekkert hafði spurst til þeirra frá 5. febrúar. 18. febrúar 2021 12:48 Sajid Sadpara varar við óprúttnum aðilum og falsfréttum Sajid Sadpara segir marga hafa komið fram á samfélagsmiðlum undir sínu nafni og nafni föður síns, Ali Sadpara. Frá þessu greinir Sajid í myndskeiði á nýstofnuðum Twitter-aðgangi. 17. febrúar 2021 15:39 Horfði á búlgörsku hetjuna hrapa til dauða fyrir framan nefið á sér Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vinnur að heimildarmynd um leiðangur John Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, lýsir taugaþrungnum augnablikum í fjallinu þegar búlgarskur göngumaður hrapaði fyrir framan nefið á honum. Sömuleiðis mistökum sem hafi mögulega bjargað lífi Saikaly og samferðamanna hans. 15. febrúar 2021 14:59 „Vonin um kraftaverk lifir“ Lína Móey Bjarnadóttir, eiginkona Johns Snorra Sigurjónssonar sem saknað hefur verið á fjallinu K2 í Pakistan í meira en viku, segir vonina um kraftaverk lifa. 15. febrúar 2021 10:00 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira
John Snorri, Ali og Juan Pablo formlega taldir af Fjallgöngumennirnir John Snorri Sigurjónsson, Ali Sadpara frá Pakistan og Juan Pablo Mohr frá Chile hafa nú formlega verið taldir af hjá pakistönskum yfirvöldum. Þeir höfðu reynt að klífa K2, en ekkert hafði spurst til þeirra frá 5. febrúar. 18. febrúar 2021 12:48
Sajid Sadpara varar við óprúttnum aðilum og falsfréttum Sajid Sadpara segir marga hafa komið fram á samfélagsmiðlum undir sínu nafni og nafni föður síns, Ali Sadpara. Frá þessu greinir Sajid í myndskeiði á nýstofnuðum Twitter-aðgangi. 17. febrúar 2021 15:39
Horfði á búlgörsku hetjuna hrapa til dauða fyrir framan nefið á sér Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vinnur að heimildarmynd um leiðangur John Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, lýsir taugaþrungnum augnablikum í fjallinu þegar búlgarskur göngumaður hrapaði fyrir framan nefið á honum. Sömuleiðis mistökum sem hafi mögulega bjargað lífi Saikaly og samferðamanna hans. 15. febrúar 2021 14:59
„Vonin um kraftaverk lifir“ Lína Móey Bjarnadóttir, eiginkona Johns Snorra Sigurjónssonar sem saknað hefur verið á fjallinu K2 í Pakistan í meira en viku, segir vonina um kraftaverk lifa. 15. febrúar 2021 10:00