Bein útsending: Sjö mínútur af ótta Samúel Karl Ólason skrifar 18. febrúar 2021 17:00 Tölvuteiknuð mynd af lendingu Perseverance í Jeasdfg gígnum. Vísir/NASA Vísindamenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, munu í kvöld gera tilraun til að lenda vélmenninu Perseverance, eða Þrautseigja, á yfirborði Mars eftir tæplega 500 milljón kílómetra ferðalag yfir hálft ár.
Lendingin er erfiðasti áfangi ferðarinnar. Jeppinn þarf að hægja allsvakalega á sér, en þegar hann fer sem hraðast fer hann um tuttugu þúsund kílómetra á klukkustund. Á þeim hraða gæti maður keyrt frá Reykjavík til Akureyrar á rúmri mínútu. Hægt verður að fylgjast með lendingunni í útsendingu NASA hér að neðan. Útsendingin hefst upp úr klukkan sjö í kvöld og er áætlað að lendingin sjálf hefjist skömmu fyrir níu. Í raun eru tvö vélmenni að lenda á Mars í kvöld, heppnist lendingin, því um borð í Perseverence er vélmennið Ingenuity. Það er lítil þyrla sem reynt verður að fljúga um Mars en ekki er vitað hvort það sé í raun hægt. Þyrlan er tæp tvö kíló að þyngd og er með fjóra 1,2 metra langa spaða. Þeir spaðar snúast um 2.400 sinnum á mínútu, sem er um átta sinnum hraðar en hefðbundnar þyrlur gera á jörðinni. Andrúmsloft Mars er mun þynnra en andrúmsloft jarðarinnar og er þéttleiki þess einungis eitt prósent af því sem við þekkjum. Á móti kemur að þyngdaraflið á Mars er einungis þriðjungur þess sem við erum vön hérna á jörðinni. Takist að fjúga Ingenuity, myndi það opna á möguleikann á því að senda frekari fljúgandi vélmenni til Mars í framtíðinni og jafnvel þyrlur sem hægt væri að nota til að ferja búnað frá einum lendingarstað til annars. Perseverance og Ingenuity munu lenda í Jezero-gígnum sem á árum áður var fullur af vatni. Lendingin á að vera nærri gömlum ós, því þar þykja meiri líkur en annars á því að vélmennið rambi á leyfar örvera sem hafa mögulega lifað á Mars á árum áður. Vélmennið mun taka jarðvegssýni og verður búnaður þess til að rannsaka þau sýni eins vel og hægt er. Bestu sýnin mun vélmennið undirbúa fyrir flutning aftur til jarðarinnar, sem á að gerast seinna á áratugnum. Hér má sjá farveg árinnar sem flæddi í Jezero-gíginn.NASA/JPL-Caltech Meðal tækja í Perseverance eru SHERLOC (sem er skammstöfun fyrir munnfyllina Scanning Habitable Ennvironments with Raman & Luminescence for Organics & Chemicals) sem greinir lífrænar öreindir. Vélmennið ber einnig græjuna PIXL (Planetary Instrument for X-ray Lithochemistry) sem greina á samsteningu jarðvegs Mars og mögulegra lífrænna sameinda. Áhugsamir geta lesið betur um leitina að lífi á Mars hér á vef NASA. Hér má sjá myndband NASA um Jezero, sem gert var árið 2018. Perseverance á einnig að nota til að undirbúa mannaðar ferðir til Mars. Vélmennið ber til að mynda lítið tæki sem kallast MOXIE (Mars Oxygen In-Situ Resource Utilization Experiment). Því tæki er ætlað að kanna hvort mögulegt sé að framleiða súrefni úr andrúmslofti Mars, sem er úr koltvísýringi. Sé það hægt væri hægt að nota það súrefni til öndunar og í eldflaugaeldsneyti. Tækið MEDA (Mars Environmental Dynamics Analyzer) verður notað til að rannsaka andrúmsloft og veðurfar Mars. Það verður einnig notað til að skoða ryk plánetunnar nánar og þykir einkar mikilvægt fyrir mannaðar geimferðir. Frekari upplýsingar um tækjabúnað Perseverance má finna hér á vef NASA. Lendinginn sjálf er áhugaverð en hún mun taka um sjö mínútur og er sjálfsstýrð. Vísindamenn NASA munu því þurfa að fylgjast með úr fjarska og tekur það nokkrar mínútur að fá á hreint hvort að lendingin heppnaðist eða ekki, ef mið er tekið af því þegar Curiosity, „frænda“ Perseverance var lent á Mars. Lendingarferlið kalla NASA-liðar „sjö mínútur af ótta“. Í Jezero-gígnum eru gamlir árfarvegir, grjóthnullungar og annað sem getur valdið Perseverance tjóni við lendingu. Til að forðast það og svo vélmennið geti lent á góðum stað, mun það svífa í fallhlíf yfir Jezero-gígnum um tíma. Þá mun vélmennið nota myndavélar og annarskonar skynjara til að finna bestan lendingarstað. Í kjölfar þess mun vélmennið losna frá geimfarinu og ferðast til yfirborðs Mars með sérstöku lendingarfari. Hér að neðan má sjá tvö myndbönd um lendingu Perseverance. Það fyrra er tölvuteiknað og sýnir lendinguna. Í hinu síðara er rætt við nokkra af sérfræðingum NASA og farið nánar út í lendinguna sjálfa og tæknina sem notuð er.
Geimurinn Bandaríkin Tækni Mars Tengdar fréttir Ætla að lenda á Mars í kvöld Þrautseigja, nýjasti Mars-jeppi bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA, á að lenda á Mars stuttu fyrir klukkan níu í kvöld. Hálft ár er frá því jeppanum var skotið á loft. 18. febrúar 2021 14:01 Öngþveiti á sporbraut um Mars Ákveðið öngþveiti verður á sporbraut um Mars í næstu viku þegar þrjú ný geimför hafa náð sporbraut um plánetuna. Kínverskt geimfar náði á braut um Mars í gær en þar var fyrir geimfar frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 11. febrúar 2021 21:02 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Sjá meira
Ætla að lenda á Mars í kvöld Þrautseigja, nýjasti Mars-jeppi bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA, á að lenda á Mars stuttu fyrir klukkan níu í kvöld. Hálft ár er frá því jeppanum var skotið á loft. 18. febrúar 2021 14:01
Öngþveiti á sporbraut um Mars Ákveðið öngþveiti verður á sporbraut um Mars í næstu viku þegar þrjú ný geimför hafa náð sporbraut um plánetuna. Kínverskt geimfar náði á braut um Mars í gær en þar var fyrir geimfar frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 11. febrúar 2021 21:02