Er ekki kominn tími á, að Sjálfstæðisflokkurinn verði sjálfstæður! Ole Anton Bieltvedt skrifar 15. febrúar 2021 13:00 Þann 5. febrúar sl. var ritstjórnargrein, leiðari, í Morgunblaðinu, sem allir hugsandi menn ættu að kynna sér. Höfundur mun hafa verið fyrrverandi borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og nú annar ritstjóra blaðins. Sennilega áhrifamesti maður landsins síðustu 3-4 áratugi. Hér má líka hafa í huga, að Morgunblaðið, með sína hundrað ára sögu, hefur, lengst af, verið helzti, áhrifamesti og virtasti fjölmiðill landsins, þó að hann haldi þeim sessi ekki lengur. Í öllu falli verða lesendur að geta vænst þess, að leiðarar blaðisins séu efnislega réttir og allur málflutningur þar sæmilega vandaður og ábyrgur, sem ekki er í þessu tilviki. Um hvað snérist svo þessi leiðari? Bóluefni við COVID-19, útvegun á því svo og framgöngu ESB í málinu. Við þetta efni varð ritstjórinn svo - eins og nánast ósjálfrátt og af gömlum vana - að hnýta árásum og óhróði, mest staðlausum stöfum, á ESB og Evruna. Þá skal stuttlega skýrt frá því, sem satt er og rétt í bóluefnamálinu: Strax í byrjun júní sl. setti ESB 2 milljarða Evra, 320 milljarða króna, í það að styðja við þróun bóluefnis hjá 6 þróunarfyrirtækjum og framleiðendum, jafnframt því, sem sambandið tryggði sér, með þessari fyrirfram fjármögnun, hagstætt verð og forgangsafgreiðslu bóluefnis hjá nefndum aðilum. Tryggði sambandið sér á þennan hátt afhendingu 1,3 milljarða bóluefnisskammta, fyrir aðildarríkin 27, á lægstu mögulegu verði og með mestum mögulegum hraða. Þar sem þetta verkefni var unnið með fjármunum aðildar-ríkjanna 27, var ekki heimilt að veita öðrum löndum aðgang að þessum hagstæðu samningum, en vegna velvildar, ekki sízt nýs forseta framkvæmdastjórnar ESB, Ursulu von der Leyen, var sú leið fundin fyrir Ísland og Noreg, vegna náinna tengsla og samvinnu þeirra við ESB, að þau fengju líka aðgang að þessum bezt mögulegu lausnum í gegnum kvóta aðildarríkisins Svíþjóðar. Hér var því um hreint vinarbragð ESB gagnvart Íslandi og Noregi að ræða, þökk sé ekki sízt von der Leyen. Nú fyrir nokkru, þegar tilteknir bóluefnaframleiðendur, sem höfðu notið fjárstyrks ESB, tilkynntu, að þeir myndu ekki standa við gerða afhendingarsamninga við ESB, og þá um leið Ísland og Noreg, á sama tíma og þeir virtust ætla að afgreiða Bretland að fullu, brást ESB hart við og boðaði mögulegt útflutningsbann á bóluefni út úr ESB, sem þýddi m.a. lokun landamæra milli ESB og Bretlands, á Írlandi. Var þetta skref tekið til að þrýsta á framleiðendur með það, að þeir stæðu við sínar afhendingarskuldbindingar. Þessi landamæraþrýstingur, sem byggði á ákvæði í Brexitsamningnum, stóð aðeins hálfan dag, án þessa að valda nokkrum manni tjóni. Var í raun bara viðvörun. Ofangreint var það efni, sem leiðarahöfundur greinilega vildi fjalla um. Hvað stendur svo í leiðaranum? Tilvitnun I: „Ofan á furðulegt andvaraleysi og seinagang í miðjum heimsfaraldri bætist ótrúlegt dómgreindarleysi og bráðlæti...“. Lesendur geta, hver um sig, dæmt um það, hvort þetta sé rétt og sanngjörn lýsing á atburðarásinni. Tilvitnun II: „Bóluefnishneyksli ESB koma efasemdarmönnum um Evrópu-samrunann ekki á óvart. Þeir hafa um árabil varað við því að Evrópusambandið sé martraðarkennt möppudýraveldi, vígi verndarstefnu og pilsfaldakapítalisma, þar sem sóun og stöðnun haldast í hendur, kjötkatlaklúbbur afdankaðra 3. flokks stjórnmálamanna, án lýðræðislegrar tilsjónar almennings álfunnar sem fær að gjalda fyrir dýru verði. Það er ekki nýtt, en á síðustu vikum hafa afhjúpast sönnunargögn fyrir öllu þessu“. Ég spurði mig nú bara, þegar ég las þetta, datt leiðarahöfundur á höfuðið eða gekk hann á ljósastaur. Um hvaða „bóluefnahneyksli“ er hann að tala? ESB var akkúrat að gera sitt bezta til að tryggja hagsmuni Evrópubúa - líka okkar Íslendinga - með viðleitni sinni og framgöngu. Fyrir hvern, eða hvað, er ESB „martraðarkennt möppudýraveldi“? Sat hér götustrákur, reyndar sennilega nokkuð roskinn og grár, við leiðaraskrif!? Hverjir eru í „kjötkatlaklúbbi afdankaðra 3. flokks stjórnmála-manna, án lýðræðislegrar tilsjónar...“? Eru það kannske t.a.m. Stefan Löfven, Mette Frederiksen, Angela Merkel, Mark Rutte, Sebastian Kurz, Emmanuel Macron, Giuseppe Conte? Svona fúkyrði og dónaskapur um virta og leiðandi stjórnmála-menn álfunnar eru auðvitað fáheyrð; algjör ósvinna og hreint hneyksli! Annan ósannan, yfirkeyrðan og skammarlegan málflutning er að finna í m.a. þessari tilvitnun: Tilvitnun III: „...og eins þurfa Danir, Pólverjar, Tékkar og fleiri evrulausar þjóðir að ábyrgjast stórfenglega lántöku til að bjarga evrunni enn eina ferðina“. „Bjarga evrunni“!? Það rétta hér er þetta: Þegar Evran var innleidd, um síðustu aldamót, var verðgildi hennar gagnvart Bandaríkjadal 1,00 Evra = 1,07 Bandaríkjadalur. Á þeim tveimur áratugum, sem liðnir eru, hefur Evran nánast alltaf verið vel yfir þessum mörkum, stundum langt yfir þeim, og í dag er ein Evra 1,21 USD. Evran hefur þannig verið sterkasti og stöðugasti gjaldmiðill heims síðustu 20 árin. Tilvitnun IV: „...þar sem hin máttugu ríki ráða því sem þau vilja og núningurinn eykst, en vanhæfni og vanmáttur hinnar ólýðisræðilegu valdastéttar í Brussel er orðin að sérstökum vanda“ Þær fullyrðingar, sem hér eru settar fram, eru líka algjörlega út í hött og fáránlegar. ESB er lýræðislegasta samband þjóðríkja í sögunni. Engin ný meiriháttar lagasetning eða stefnumörkun tekur gildi fyrr en allar aðildarþjóðirnar 27, og þjóðþing þeirra, svo og Evrópuþingið, með á áttunda hundrað lýðræðislega kjörinna þingmanna, úr allri álfunni, hafa lagt blessun sína yfir málið. Á sínum tíma neitaði t.a.m. eitt af þjóðþingum Belga, þjóðþing þjóðarbrotsins Vallóna, að samþykkja fríverzlunarsamning við Kanada, sem sambandið hafði unnið hart að í 7 ár. Þá fyrst, þegar þjóðþing Vallóna hafði fengið fram sinn vilja sinn um ákveðnar breytingar, var hægt að staðfesta samninginn. Á sama hátt fékkst ný 7-ára fjárhagsáætlun ESB, ásamt regluverki um björgunarsjóð fyrir aðildarríkin vegna COVID-19, mánuðum saman ekki samþykkt, vegna þess, að Ungverjar og Pólverjar – varla „kjölfesturíki ESB“ – settu skilyrði og stöðvuðu málið. Fullyrðingin um „ólýðræðislega valdastétt í Brussel“ er því með öllu staðlausir stafir. Brussel framkvæmir aðeins það, sem aðildarþjóðirnar 27, þjóðþing þeirra og Evrópuþingið hafa samþykkt. Brussel hefur í raun ekkert eigið vald. Þessi ritstjóri virðist halda Sjálstæðisflokknum í gíslingu með skoðanir og stefnumál flokksins. Er ekki kominn tími á, að flokkurinn losi sig við þau ósannindi, þær rangfærslur og þær slitnu klisjur, sem því fylgja!? Er ekki kominn tími á, að Sjálfstæðisflokkurinn verði sjálfstæður!? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Skoðun: Kosningar 2021 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Heilbrigðiskerfi Íslands - Látum verkin tala! Victor Guðmundsson Skoðun Íslendingar – rolluþjóð með framtíð í hampi Sigríður Ævarsdóttir Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks Skoðun Dýrasti staður í heimi Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun Einn pakki á dag Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Vissir þú, að.... og eða er þér bara slétt sama Björn Ólafsson Skoðun Skuggaráðherra ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Grafið undan grunnstoð ríka samfélagsins Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun Öfgamaður deyr Andri Þorvarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslendingar – rolluþjóð með framtíð í hampi Sigríður Ævarsdóttir skrifar Skoðun Við hvað erum við hrædd? Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson skrifar Skoðun Höfuðborgin eftir fimmtíu ár, hvað erum við að tala um? Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar Skoðun Einn pakki á dag Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Látum verkin tala! Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hörmungarnar sem heimurinn hunsar Ragnar Schram skrifar Skoðun Dýrasti staður í heimi Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð ríka samfélagsins Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Milljarðar evra streyma enn til Pútíns Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Speglar geta aðeins logið – um hlutlægni, huglægni og mennskuna Hjalti Hrafn Hafþórsson skrifar Skoðun Að þétta byggð Halldór Eiríksson skrifar Skoðun Þegar viðskiptalíkan Vesturlanda er stríð – og almenningur borgar brúsann Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Slökkvum ekki Ljósið Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Er það ekki sjálfsögð krafa að fá bílastæði? Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Of lítið, of seint! Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Halla fer að ræða um frið við einræðisherra Daníel Þröstur Pálsson skrifar Skoðun Ákall til allra velunnara Sólheima í Grímsnesi Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Varðveitum vatnið – hugvekja Hópur starfsfólks Náttúruminjasafns Íslands skrifar Skoðun Innviðaskuld við íslenskuna Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Náttúruvernd er loftslagsaðgerð og loftslagsaðgerðir þjóna náttúrunni Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Fatlað fólk rukkað með rangindum fyrir bílastæði Haukur Ragnar Hauksson skrifar Skoðun Vissir þú, að.... og eða er þér bara slétt sama Björn Ólafsson skrifar Skoðun Hver hagnast á hatrinu? Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Öfgamaður deyr Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Að taka til í orkumálum Guðrún Schmidt skrifar Skoðun Börn sem skilja ekki kennarann Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar Skoðun Skortur á rafiðnaðarfólki ógnar samkeppnishæfni Evrópu Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Sjá meira
Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks Skoðun
Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun
Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks skrifar
Skoðun Speglar geta aðeins logið – um hlutlægni, huglægni og mennskuna Hjalti Hrafn Hafþórsson skrifar
Skoðun Þegar viðskiptalíkan Vesturlanda er stríð – og almenningur borgar brúsann Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Náttúruvernd er loftslagsaðgerð og loftslagsaðgerðir þjóna náttúrunni Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Skoðun Skortur á rafiðnaðarfólki ógnar samkeppnishæfni Evrópu Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks Skoðun
Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun