Innlent

Ekkert frést af flóðum á Seyðisfirði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa
Fyrr í vetur féllu aurskriður á Seyðisfirði en nú voru þrjú hús í bænum rýmd vegna snjóflóðahættu.
Fyrr í vetur féllu aurskriður á Seyðisfirði en nú voru þrjú hús í bænum rýmd vegna snjóflóðahættu. Vísir/Arnar

Ekkert hefur frést af því að snjóflóð hafi fallið á Seyðisfirði í nótt að sögn ofanflóðafræðings hjá Veðurstofu Íslands.

Veðurstofan ákvað í gærkvöld að að rýma skilgreind svæði á Seyðsfirði vegna snjóflóðahættu. Rýming tók gildi klukkan níu í gærkvöldi og nær til reita 4 og 6 á Seyðisfirði undi Strandartindi yst í sunnanverðum firðinum, vegna hættu á votum snjóflóðum.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hætti að rigna á svæðinu á milli klukkan fimm og sex í morgun og gerir veðurspáin ráð fyrir að það verði að mestu þurrt í bænum í dag.

Veðurstofan mun þó áfram fylgjast grannt með gangi mála og verða aðstæður metnar í birtingu. Varðskipið Þór, sem var á Reyðarfirði í gær, var sent yfir til Seyðisfjarðar til öryggis og er skipið nú þar í höfn.

Meira en 100 mm af úrkomu víða síðasta sólarhringinn

Gríðarlega mikil rigning hefur verið á Suðausturlandi og Austfjörðum síðasta sólarhringinn. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar er farið yfir það hvar úrkoman hefur mælst mest:

„Á Suðausturlandi mældist mesta úrkoman á Kvískerjum, eða rétt rúmir 100 mm síðasta sólarhring í sjálfvirkan úrkomumæli.

Á Höfn í Hornafirði og Kirkjubæjarklaustri var einnig drjúg rigning, eða um 47 mm á hvorum stað. Nú þegar þetta er skrifað er hætt að rigna á Suðausturlandi, en búast má við skúradembum þar í dag.

Á Austfjörðum rigndi enn meira en á Suðausturlandi. Mest mældist 133 mm síðasta sólarhring í sjálfvirkan úrkomumæli í Bakkagerði (á Borgarfirði Eystra).

Á Eskifirði og Neskaupstað mældist álíka mikil rigning, eða um 110 mm á hvorum stað. Á Fáskrúðsfirði hafa síðan mælst 100 mm síðasta sólarhring.

Á Seyðisfirði mældust 66 mm á mælistöðinni inni í bænum, en til samanburðar má geta þess að í rigningunum miklu í desember sl. mældust þar mest 163 mm á einum sólarhring.

Nú hefur stytt upp að mestu á Austfjörðum, en búast má við skúrum þar í dag, þá einkum á sunnanverðum fjörðunum í sunnanáttinni,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu:

Sunnan 8-15 m/s í dag og skúrir, en bjartviðri norðan- og norðaustanlands. Hiti 2 til 7 stig.

Austlæg átt 5-13 á morgun og rigning með köflum, en hægari þurrt að kalla norðan- og vestanlands fram á kvöld. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag:

Austlæg átt 5-13 m/s og rigning með köflum, en þurrt að kalla norðan- og vestanlands fram undir kvöld. Hiti 2 til 7 stig.

Á miðvikudag:

Fremur hæg breytileg átt og víða rigning eða slydda. Sunnan og suðvestan 5-13 seinnipartinn og styttir upp á Norður- og Austurlandi. Hiti 1 til 6 stig.

Á fimmtudag:

Breytileg átt 3-10 og víða líkur á slyddu eða snjókomu, en rigning með austurströndinni. Úrkomulítið um kvöldið. Hiti um og yfir frostmarki.

Á föstudag:

Gengur í norðaustan 5-10, en 10-15 með suðausturströndinni. Víða þurrt og bjart veður, en rigning eða snjókoma á austanverðu landinu síðdegis. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust austast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×