Everton beið lægri hlut fyrir nýliðum Fulham í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrri hálfleikur var markalaus en gestirnir létu til sín taka strax í upphafi síðari hálfleiks.
Josh Maja, sóknarmaður að láni hjá Fulham frá Bordeaux, kom Fulham í forystu á 48.mínútu. Hann var svo aftur á ferðinni á 65.mínútu og tryggði liði sínu þar með 0-2 sigur.
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Everton.