Vill hafa meira gaman og minna leiðinlegt Rakel Sveinsdóttir skrifar 13. febrúar 2021 10:01 Guðný Helga Herbertsdóttir. Vísir/Vilhelm Þegar Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá VÍS, varð fertug setti hún sér það markmið að hafa meira gaman en minna leiðinlegt. Þetta markmið hefur gefist vel, ekki síst á tímum Covid. Guðný Helga segist vera svo mikil lista-kona í skipulagi að oft geri fjölskyldan grín að. Þá segist hún hafa lært margt af netinu, til dæmis lærði hún að prjóna af YouTube.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Heimir, Gulli og Þráinn vekja mig alltaf um klukkan sjö.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég vildi að ég gæti sagt að ég færi í ræktina eða gerði eitthvað meiriháttar uppbyggilegt fyrir vinnu. Það fyrsta sem ég geri hins vegar er að lesa yfir tölvupóstana mína, skanna fréttamiðlana og skoða dagskrá dagsins. Minn tími hefur svo aðallega verið í bílnum á leið í vinnu en þá hlusta á ég á hljóðbók eða hlaðvarp.“ Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í frístundum? „Ég á mörg áhugamál og það er alltaf að bætast á þann lista. Þegar ég varð fertug þá setti ég mér það markmið að hafa meira gaman og minna leiðinlegt. Hef staðið ótrúlega vel við það markmið þrátt fyrir almenn Covid-leiðindi síðasta árið. Ég á það til að sökkva mér í ákveðin mál og ég hef til að mynda lært ýmislegt af Youtube, eins og að prjóna. Mér finnst líka meiriháttar gaman að elda og leika mér úti, til að mynda á skíðum eða spila golf. Ástríða mín samt númer eitt er stangveiði og ég nýt mín hvergi betur en við þá iðju. Ég nýti líka hvert tækifæri til að fara í sumarbústaðinn okkar en mér líður alltaf best í sveitinni.“ Uppahaldsáhugamál Guðnýjar Helgu er stangveiði og eins nýtir hún hvert tækifæri sem gefst til að fara upp í sumarbústað.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Þrátt fyrir fjölbreyttar áskoranir vegna alheimsfaraldursins, þá flýtti hann fyrir stafrænni þróun víða í samfélaginu. Líka hjá okkur í VÍS. Við höfum á síðustu þremur árum sett í loftið fjölmargar nýjar stafrænar lausnir og geta viðskiptavinir okkar nú tilkynnt öll tjón og fengið úrlausn nær samstundis á algengustu tjónunum, komið í viðskipti og nálgast allar helstu upplýsingar á VÍS.is. Við erum á þessari vegferð og kynnum reglulega nýjungar á þessu sviði. Sú næsta er handan við hornið en það er algjörlega ný leið í tryggingum hér á landi sem við höfum fulla trú á að falli í góðan jarðveg hjá viðskiptavinum okkar.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég er almennt mjög skipulögð í þeim verkefnum sem ég tek mér fyrir hendur, hvort sem það snýr að vinnu eða einkalífinu. Tímalistarnir mínir fyrir jólin og matseldina á aðfangadag hafa til að mynda verið mikið aðhlátursefni í fjölskyldunni! Ég vinn mikið með to-do lista og tímalínur fyrir verkefni sem eru í gangi. Ég legg mikið upp úr góðu upplýsingaflæði og opinna samskipta í teyminu mínu. Síðustu mánuði hef ég endað hverja vinnuviku á því að fara yfir sigra vikunnar með stjórnendum á sviðinu sem ég stýri. Það bæði hjálpar mér að halda utan um þann árangur sem við erum að ná en sendir líka alla vel inn í helgina. Mæli klárlega með þessu!“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég í eðli mínu frekar mikil B manneskja og fæ oft bestu hugmyndirnar mínar þegar aðrir heimilismeðlimir eru farnir að sofa. Ef ég hef átt þannig kvöld nýti ég líka morguninn í að fara yfir hvort hugmyndin hafi verið snilld eða algjört bull! Það er nefnilega oft þunn lína þar á milli. Þetta kvöldbrölt mitt verður til þess að ég fer yfirleitt alltof seint að sofa og það er alls ekki til eftirbreytni.“
Kaffispjallið Stafræn þróun Tengdar fréttir Endar iðulega í viðtölum við áhugavert fólk Tinni Jóhannesson ráðningastjóri og ráðgjafi hjá Góðum samskiptum finnst gott að taka daginn snemma en það er þriggja mánaða dóttirin sem stýrir því einna helst, hvenær hann fer síðan að sofa á kvöldin. Honum finnst best að nota morgnana eða síðdegin til að skipuleggja verkefni í vinnunni en lýsir í kaffispjallinu hvernig honum fyndist fullkomin helgi vera, nú á tímum Covid. 6. febrúar 2021 10:00 Kisurnar „sofa annað hvort ofan á mér eða límdar upp við mig“ Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, byrjar daginn á því að klappa kisunum sínum. Hún segir eiginmanninn sofa í gegnum fyrri hluta morgunrútínunnar en vakna við ófriðinn þegar hún fer að hafa sig til. Svanhildur segist mikil listakona í skipulagi og á það til að detta í einhver ofurgír á kvöldin. 30. janúar 2021 10:01 „Koddahugmyndirnar“ í rúminu misgóðar daginn eftir Guðmundur Pálsson framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segist oftast fljótur að sofna á kvöldin. Stundum poppa þó upp svo góðar hugmyndir fyrir viðskiptavini að hann glaðvaknar. Þessar „koddahugmyndir“ reynast þó misgóðar daginn eftir þegar mætt er til vinnu. Í golfinu vinnur Guðmundur markvisst af því að ná forgjöfinni niður fyrir tíu. 23. janúar 2021 10:00 100 konur á „Kvenndalshnúk“ í maí Snjódrífurnar vöktu athygli landsmanna þegar þær gengu Vatnajökul í fyrra og söfnuðu pening fyrir Líf og kraft. Í vor stefna 100 konur á Hvanndalshnúk, eða „Kvenndalshnúk“ eins og hann er kallaður af hópnum þar sem aftur verður safnað til góðgerðarmála. 16. janúar 2021 10:00 Átakanlegar stundir fylgja starfinu í Farsóttarhúsinu Síðustu vikur höfum við séð Gylfa Þór Þórsteinsson reglulega í fréttum, enda sinnir hann nú því starfi að vera umsjónarmaður Farsóttarhúsa. Gylfi segist í raun aldrei vita hvað bíður hans í vinnunni. Starfið er samt gefandi og í raun það skemmtilegasta sem Gylfi hefur sinnt til þessa. Hins vegar fylgja því einnig átakanlegar stundir. Til dæmis þegar hann þurfti að fylgja konu að kveðja unnusta sinn í síðasta sinn. 9. janúar 2021 10:00 Mest lesið Fluttur til Austin vegna útrásar súkkulaðismjörsins Viðskipti innlent Fá rammasamning ekki virkjaðan og sjúklingar þurfa að greiða úr eigin vasa Viðskipti innlent Þóra kveður Stöð 2 Viðskipti innlent „Oft velur maður frekar það sem maður er góður í“ Atvinnulíf Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Samstarf Oculis rauf 3000 króna múrinn og gott betur Viðskipti innlent Garðar Hannes hættir hjá Eik fasteignafélagi Viðskipti innlent Lilja og Steinar nýir forstöðumenn hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Klara frá Kerecis til Arterna Biosciences Viðskipti innlent Tölvuárásin til rannsóknar og enn unnið að viðgerð Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Oft velur maður frekar það sem maður er góður í“ Verkefnin í fyrra: Stelpupabbar, forðunarhegðun, mismunun og áherslan á jákvæðnina „Hef einstaklega gaman af þessari stanslausu niðurlægingu“ Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Sjálfstætt starfandi fjölgar: „Hvað gerist þegar forstjórinn veikist?“ Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ „Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Kaffispjallið '24: Þar sem jafnvel dýpstu leyndarmálin eru afhjúpuð... Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar „Ég spyr: Er í lagi að grípa í rass og þukla á brjóstum?“ Sterkasti fasteignasali landsins: Að verða pabbi breytti öllu „Tek góða bæn, þakka fyrir daginn og sofna á núll einni“ Hittust á stefnumótaappi og blása nú lífi í týndar sögur Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir „Ég var alveg ákveðin í því að verða bankakona“ Fer í pyntingar með eiginkonunni tvo morgna í viku Bryndís tekur við af Dagmar hjá Austurbrú Ekki brenna út á aðventunni Sjá meira
Endar iðulega í viðtölum við áhugavert fólk Tinni Jóhannesson ráðningastjóri og ráðgjafi hjá Góðum samskiptum finnst gott að taka daginn snemma en það er þriggja mánaða dóttirin sem stýrir því einna helst, hvenær hann fer síðan að sofa á kvöldin. Honum finnst best að nota morgnana eða síðdegin til að skipuleggja verkefni í vinnunni en lýsir í kaffispjallinu hvernig honum fyndist fullkomin helgi vera, nú á tímum Covid. 6. febrúar 2021 10:00
Kisurnar „sofa annað hvort ofan á mér eða límdar upp við mig“ Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, byrjar daginn á því að klappa kisunum sínum. Hún segir eiginmanninn sofa í gegnum fyrri hluta morgunrútínunnar en vakna við ófriðinn þegar hún fer að hafa sig til. Svanhildur segist mikil listakona í skipulagi og á það til að detta í einhver ofurgír á kvöldin. 30. janúar 2021 10:01
„Koddahugmyndirnar“ í rúminu misgóðar daginn eftir Guðmundur Pálsson framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segist oftast fljótur að sofna á kvöldin. Stundum poppa þó upp svo góðar hugmyndir fyrir viðskiptavini að hann glaðvaknar. Þessar „koddahugmyndir“ reynast þó misgóðar daginn eftir þegar mætt er til vinnu. Í golfinu vinnur Guðmundur markvisst af því að ná forgjöfinni niður fyrir tíu. 23. janúar 2021 10:00
100 konur á „Kvenndalshnúk“ í maí Snjódrífurnar vöktu athygli landsmanna þegar þær gengu Vatnajökul í fyrra og söfnuðu pening fyrir Líf og kraft. Í vor stefna 100 konur á Hvanndalshnúk, eða „Kvenndalshnúk“ eins og hann er kallaður af hópnum þar sem aftur verður safnað til góðgerðarmála. 16. janúar 2021 10:00
Átakanlegar stundir fylgja starfinu í Farsóttarhúsinu Síðustu vikur höfum við séð Gylfa Þór Þórsteinsson reglulega í fréttum, enda sinnir hann nú því starfi að vera umsjónarmaður Farsóttarhúsa. Gylfi segist í raun aldrei vita hvað bíður hans í vinnunni. Starfið er samt gefandi og í raun það skemmtilegasta sem Gylfi hefur sinnt til þessa. Hins vegar fylgja því einnig átakanlegar stundir. Til dæmis þegar hann þurfti að fylgja konu að kveðja unnusta sinn í síðasta sinn. 9. janúar 2021 10:00