Chelsea vann þriðja leik sinn í röð undir stjórn Thomas Tuchel þegar liðið heimsótti botnlið Sheffield United í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Mason Mount þakkaði traustið og kom gestunum í 0-1 forystu á markamínútunni frægu, þeirri fertugustu og þriðju og fór Chelsea því með eins marks forystu í leikhléið.
Þýski varnarmaðurinn Antonio Rudiger jafnaði metin fyrir Sheffield United þegar hann varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 54.mínútu.
Jorginho var fljótur að ná forystunni aftur fyrir Chelsea því hann skoraði úr vítaspyrnu á 58.mínútu.
Fleiri urðu mörkin ekki og naumur sigur Chelsea staðreynd.