Kiwisun bannað að birta ósannindi um virkni ljósabekkja Atli Ísleifsson skrifar 5. febrúar 2021 10:04 Í kynningum sólbaðsstofunnar var fullyrt að 3UV ljós í ljósabekkjum stofunnar verndi húðina gegn bruna, auki endorfín og hjálpi til við að jafna húðina. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Neytendastofa hefur því bannað sólbaðsstofunni Kiwisun, sem til húsa í Borgartúni, að birta ákveðnar fullyrðingar, sem taldar eru ýmist rangar eða ósannaðar, um virkni ljósabekkja fyrirtækisins í kynningum.
Þetta kemur fram í ákvörðun Neytendastofu sem birt er í dag. Í kynningum sólbaðsstofunnar var fullyrt að 3UV ljós í ljósabekkjum stofunnar verndi húðina gegn bruna, auki endorfín og hjálpi til við að jafna húðina. „Einnig kom fram að 3UV ljósin veiti meira D-vítamín auk þess sem græni liturinn á ljósinu geti dregið úr streitu og veiti þannig afslöppun og hugarróandi reynslu. Í svörum Kiwisun kom fram að félagið væri ekki að fullyrða neitt sem ekki hafi áður verið rannsakað og sannað. Fullyrðingar um upplifun af græna ljósinu byggi auk þess á reynslu viðskiptavina félagsins. Svörunum fylgdu þó engin gögn til staðfestingar fullyrðingunum. Komst Neytendastofa að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til aðgerða vegna fullyrðingar um að 3UV ljós geti leitt til aukinnar framleiðni D-vítamíns í líkamanum. Aðrar fullyrðingar félagsins taldi Neytendastofa ósannaðar og veita rangar upplýsingar um helstu einkenni þjónustunnar. Neytendastofa hefur því bannað Kiwisun að birta fullyrðingarnar,“ segir á vef Neytendastofu.
Neytendur Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent