Fimm til sjö þúsund einstaklingar í ólöglegu húsnæði Eiður Þór Árnason skrifar 1. febrúar 2021 14:54 Slökkviliðið hefur miklar áhyggjur af ólöglegu húsnæði. Vísir/vilhelm Áætlað er að um 5.000 til 7.000 einstaklingar búi í svokölluðum óleyfisíbúðum hér á landi sem séu á bilinu 1.500 til 2.000 talsins. Er þar um að ræða húsnæði sem er skipulegt undir atvinnustarfsemi en nýtt til íbúðar fyrir einstaklinga.
Þetta kemur fram í nýrri samantekt vinnuhóps sem skipaður var til að safna upplýsingum um fjölda óskráðra íbúða og leiðir til þess að fá eigendur óskráðra íbúða til að skrá þær opinberlega. Í tilkynningu frá Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) segir að margþættar ástæður geti verið fyrir því að fólk búi í slíku húsnæði en skortur á leiguhúsnæði og há leiga séu líklega veigamestu skýringarnar. Einnig séu dæmi um að starfsmannaleigur og atvinnurekendur komi starfsmönnum sínum fyrir í óleyfisbúsetu sem hafi jafnvel ekki raunverulegt val um búsetu. „Þá spilar jafnframt inn í að hluti erlends verkafólks sem dvelst tímabundið á landinu vegna vinnu kýs hreinlega að búa tímabundið í eins ódýru húsnæði og mögulegt er þar sem ekki eru gerðar sambærilegar kröfur til húsnæðisins af hálfu viðkomandi og ef um framtíðarbúsetu væri að ræða.“ Segir húsnæðismál vera í ólestri Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir skýrsluna staðfesta veruleika sem hafi blasið við allt of lengi. „Húsnæðismál eru í ólestri, það er skortur á íbúðum og fólk í neyð þarf að leita í ósamþykkt húsnæði. Það hefur veruleg áhrif á lífsgæði fólks og ekki síst barna sem þurfa félagslegt samhengi við skólahverfi og tómstundir. Að búa í mannsæmandi húsnæði er einn af hornsteinum lífsgæða og brestir á því er ógn við heilsu og jafnvel líf fólks. Þessi skýrsla er brýning til okkar allra og ekki síst stjórnvalda að spýta í lófana og tryggja öllum mannsæmandi húsnæði á viðráðanlegum kjörum,“ er haft eftir Drífu í tilkynningunni. Mikilvægt fyrir viðbragðsaðila Umrædd skýrsla var útbúin í tenglsum við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um umbætur í húsnæðismálum og gerð Lífskjarasamningana. Í niðurstöðum hennar segir að vegna ákvæða laga um skráningu lögheimilis og aðseturs sé ekki heimilt að skrá búsetu í atvinnuhúsnæði nema í undantekningartilvikum. Þetta geri það að verkum að upplýsingar liggi ekki fyrir um búsetu þeirra sem búi í óleyfisíbúðum. „Sú óvissa skapar hættu þegar vá steðjar að, líkt og eldsvoði eða náttúruhamfarir, og gerir viðbragðsaðilum erfitt fyrir í björgunarstörfum. Sú tillaga er lögð fram í skýrslunni að horfa til þess að heimila tímabundið aðsetursskráningar í skilgreindu atvinnuhúsnæði sem mætir ákveðnum kröfum,“ segir í tilkynningunni. Með því væri einstaklingur með skráð lögheimili ótilgreint í viðkomandi sveitarfélagi en aðsetur í viðkomandi atvinnuhúsnæði. Þannig væri hægt að halda betur utan um þá aðila sem búa í atvinnuhúsnæði, en slíkt er talið mikið öryggisatriði að hálfu viðbragðsaðila. Þar að auki leggur vinnuhópurinn til að endurskoðaðar verði heimildir til fjöldaskráninga lögheimilis í íbúðarhúsnæði með það í huga að setja takmörk á slíkar skráningar. Tilgangur þess væri að koma í veg fyrir að margir séu skráðir í sömu íbúð án þess að búa þar í raun og fá sem réttasta mynd af raunverulegri búsetu, meðal annars fyrir viðbragðsaðila. Fregnir bárust af því í kjölfar eldsvoðans við Bræðraborgarstíg 1 þar sem þrír fórust að alls hafi 73 einstaklingar verið skráðir þar með lögheimili. Þá hefur komið fram að brunavarnir í húsinu hafi ekki verið í samræmi við lög. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, var meðal þeirra sem vann að skýrslunni um óleyfishúsnæði. Leggja til skráningarskyldu Í skýrslu vinnuhópsins er sömuleiðis lagt til að lögfest verði skráningarskylda leigusamninga í húsnæðisgrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að fá betri yfirsýn yfir leigumarkaðinn. „Óaðgengilegar og óáreiðanlegar upplýsingar um leigumarkaðinn gera það að verkum að erfiðlega gengur að mæta þeim áskorunum sem þar er að finna með markvissum hætti. Þar með talið áskorunum líkt og hvort leiguhúsnæði uppfylli kröfur um brunavarnir, hvort eðli leigunnar er þannig að gera ætti auknar kröfur um brunavarnir, hversu margir eru búsettir í leiguíbúð o.s.frv.“ Er fyrirhugað að félags- og barnamálaráðherra leggi fram frumvarp um skráningarskyldu leigusamninga á yfirstandandi þingi.
Húsnæðismál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Hafa árangurslaust reynt að rifta leigusamningi við HD verk en ná ekki í leigusala Ungt par sem leigir herbergi í ólöglegu atvinnuhúsnæði á Dalvegi 26 hefur árangurslaust reynt að ná tali af eiganda hússins til að fá leigusamningnum rift. Húsið er í eigu sama félags og á Bræðraborgarstíg 1 sem brann í síðasta mánuði. Efling hefur áhyggjur af aðbúnaði félagsmanna sem búa í húsnæði HD verks. 14. júlí 2020 19:00 Gargandi eftirspurn eftir húsnæði knýr ólöglega búsetu áfram Slökkviliðið hefur ekki mannafla til að ráðast í aðgerðir vegna fjölda þeirra sem búa í ólöglegu íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. 21. desember 2018 14:35 Um ellefu hundruð búa ólöglega í Hafnarfirði Slökkviliðið segir búið ólöglega í atvinnuhúsnæði í Hafnarfirði á þrefalt fleiri stöðum en 2008. Bæjarráðið vill "heildstæðar tillögur að úrbótum“ á höfuðborgarsvæðinu. 21. desember 2018 07:00 Mest lesið Bubbi sendir út neyðarkall Innlent Julian Assange í heimsókn á Íslandi Innlent Allt bendir til verkfalls Innlent Býður sig ekki fram til áframhaldandi formennsku Innlent „Ég hef aldrei skorast undan ábyrgð“ Innlent „Það er óákveðið“ Innlent Segir Selenskí og Pútín að „hætta þar sem þeir eru“ Erlent Fréttamaður Ríkisútvarpsins sakaður um áreitni Innlent Ár frá morðtilrauninni: „Reyndi að drepa mig og það var eins og að drekka vatn fyrir hann“ Innlent Aðgerðir flugumferðarstjóra muni bitna á fjölda fólks Innlent Fleiri fréttir Aðgerðir flugumferðarstjóra muni bitna á fjölda fólks „Það er óákveðið“ „Ég hef aldrei skorast undan ábyrgð“ Býður sig ekki fram til áframhaldandi formennsku Allt bendir til verkfalls Bein útsending: Haustfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins Julian Assange í heimsókn á Íslandi Varað við hálku á Hellisheiði Jákvætt að rafvarnarvopn hafi fælingarmátt Yfirvofandi verkfall flugumferðarstjóra og Framsókn fundar Meintur brennuvargur úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald Breytingar á vörugjaldi muni bitna illa á tengiltvinnbílum Rafvopni tvisvar beitt við handtöku á öðrum ársfjórðungi Framsóknarmenn velja sér ritara Dró upp hníf í miðbænum Bubbi sendir út neyðarkall Varðhaldsstöð þar sem vista megi hælisleitendur og börn lengur en grunaða glæpamenn Vill skoða að lengja fæðingarorlof Allt stefnir í verkfall flugumferðarstjóra á sunnudag Skilji áhyggjurnar Fara fram á gæsluvarðhald yfir meintum brennuvargi Fréttamaður Ríkisútvarpsins sakaður um áreitni Um sé að ræða afturför í jafnréttismálum Fella niður vörugjöld á vistvæna bíla en hækka á aðra Máttu gauka nafni tengdamóðurinnar að Ásthildi Lóu Fimm ár fyrir að stinga mann í tvígang í brjóstið Misskilningur að flugvélin hafi breytt um stefnu vegna veðurs Getur ekki sagt til um hvort hún myndi kvitta undir náðun Kouranis Framtíð PCC á Bakka ekki útséð „Ekki á réttri leið“ samþykki samfélagið fátækt Sjá meira
Hafa árangurslaust reynt að rifta leigusamningi við HD verk en ná ekki í leigusala Ungt par sem leigir herbergi í ólöglegu atvinnuhúsnæði á Dalvegi 26 hefur árangurslaust reynt að ná tali af eiganda hússins til að fá leigusamningnum rift. Húsið er í eigu sama félags og á Bræðraborgarstíg 1 sem brann í síðasta mánuði. Efling hefur áhyggjur af aðbúnaði félagsmanna sem búa í húsnæði HD verks. 14. júlí 2020 19:00
Gargandi eftirspurn eftir húsnæði knýr ólöglega búsetu áfram Slökkviliðið hefur ekki mannafla til að ráðast í aðgerðir vegna fjölda þeirra sem búa í ólöglegu íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. 21. desember 2018 14:35
Um ellefu hundruð búa ólöglega í Hafnarfirði Slökkviliðið segir búið ólöglega í atvinnuhúsnæði í Hafnarfirði á þrefalt fleiri stöðum en 2008. Bæjarráðið vill "heildstæðar tillögur að úrbótum“ á höfuðborgarsvæðinu. 21. desember 2018 07:00