Innlent

„Hélt við værum örugg undir snjó­flóða­varnar­garðinum“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar

Íbúi sem þurfti ásamt fjölskyldu sinni að yfirgefa heimili sitt á Siglufirði í gær vegna snjóflóðahættu segist undrandi því snjóflóðagarður sé við húsið. Greinilegt sé að verið sé að endurmeta snjóflóðavarnir á svæðinu. Talið er að altjón hafi orðið á skíðasvæði Siglfirðinga í snjóflóði í gær en lyftan virðist hafa sloppið.

Það féll flóð í Héðinsfirði í dag og fleira bendir til þess að snjóflóðahætta sé yfirvofandi enn þá. Enn er því í gildi rýming  syðst í bænum síðan í gærvegna snjóflóðahættu frá Ytrastrengsgili. Dagný Sif Stefánsdóttir sem  er borin og barnsfædd á Siglufirði hefur ekki áður lent í því. 

Dagný Sif Stefánsdóttir þurfti að fara frá heimili sínu ásamt þremur börnum og eiginmanni í gær vegna snjóflóðahættu. Hún veit ekki hvenær þau fá að fara heim.Vísir

„Ég var mjög hissa þegar við fjölskyldan vorum beðin um að rýma húsið vegna snjóflóðahættu,  þetta hefur alltaf verið talið  öruggasta svæðið út snjóflóðavarnargarðinum hér rétt fyrir ofan okkur og ég hélt við værum örugg undir honum.  Það getur verið að eftir snjóflóðin á Flateyri í fyrra þar sem þau fóru yfir snjóflóðavarnargarð hafi viðmiðum verið breytt alls staðar á landinu. Við fengum tvo tíma til að pakka niður en við erum hjón með þrjú börn þannig að þetta var svolítið stress.  Við erum heppin og fórum yfir til mömmu og pabba sem búa í bænum og aðrir íbúar fengu líka inni hjá fólki í bænum. Við vitum ekki hvað rýmingin muni standa lengi en það er vond spá framyfir helgi,“ segir Dagný.  

Talið er að snjóflóðið sem féll á skíðasvæði Siglfirðinga í gær hafi fallið annað hvort frá Illviðrishnjúk eða Grashólabrúnum.

„Við höfum vegna ekki komist á staðinn vegna veðurs og færðar en af myndum að sjá þá virðist þetta vera altjón á skíðaskála og mannvirkjum í kring. Þá er snjótroðarinn örugglega líka skemmdur. Skíðalyftan virðist hins vegar hafa sloppið,“ segir Elías Pétursson bæjarstjóri á Siglufirði. 

 Bæjarstjórinn segir að sveitastjórnin hafi lengi óskað eftir því frá Ofanflóðasjóði að skíðasvæðið yrði fært af núverandi hættusvæði en ekkert gengið. Búið sé að teikna nýtt skíðasvæði á öruggu svæði þannig að sveitarfélaginu hafi ekki verið neitt að vanbúnaði að byrja á framkvæmdum þar. 

Eins og sjá má var eyðileggingin í kjölfar flóðsins mikil.DJI Reykjavík/Sigurður Þór Helgason

„Nú þegar öll mannvirki og búnaður á svæðinu virðist ónýtur er maður svekktur að ekki hafi verið byrjað á framkvæmdum á nýju svæði,“ segir Elías. 

Þó nokkrir hópar höfðu bókað sig í skíðaferðir á Siglufirði um helgina og pantað sér hótelgistingu en ekkert verður af því. 

Siglufjarðarvegur er lokaður og Ólafsfjarðarmúli sem var opnaður um stund í dag lokar í kvöld klukkan átta.  Samtals lokuðust þessir vegir næstum 80 sinnum á síðasta ári. Bæjarstjórinn segir ófremdarástand í vegamálum á svæðinu.

Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar.Vísir

„Mig grunar að þessar lokanir á vegum og einangrun og þjónustuleysi sem því fylgir séu samfélaginu hér og atvinnulífinu einna erfiðast. Við höfum til að mynda þurft að fá björgunarsveitir síðustu sólahringa til að sækja lyf og póst fyrir okkur. Þá er búið að byggja hér upp heilsársferðaþjónustu en þegar innviðirnir eru ekki fyrir hendi eins og góðar samgöngur getur það verið erfitt að halda slíkri þjónustu úti.  Það er nauðsynlegt að bæta úr þessu og þá væri best að gera hér jarðgöng,“ segir Elías. 

Veðurspáin fyrir næsta sólahring er svipuð og verið hefur en á vef Veðurstofunnar kemur fram: 

Norðan 10-18 m/s og skafrenningur eða éljagangur, ekki síst á Tröllaskaga. Skyggni mjög lítið á köflum og aksturrsskilyrði erfið, einkum á fjallvegum.


Tengdar fréttir

Líklega altjón á skíðasvæðinu á Siglufirði

Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, fundaði með forsvarsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði í morgun. Snjóflóð skall á skíðaskálann í gærmorgun og hreif skálann af grunni sínum. Elías segir í samtali við fréttastofu að líklega sé um altjón á skíðasvæðinu að ræða. Skíðalyftan hafi þó sloppið fyrir horn.

Köldu norð­lægu áttirnar ekkert að gefa eftir

Köldu norðlægu áttirnar með ofankomu fyrir norðan og austan eru ekkert að fara að gefa eftir næstu daga. Einna helst er að sjá að hiti nái að skríða yfir frostmark syðst á landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×