Erlent

Lífverðirnir máttu ekki gera þarfir sínar hjá Ivönku og Jared

Samúel Karl Ólason skrifar
Jared Kushner og Ivanka Trump.
Jared Kushner og Ivanka Trump. EPA/MICHAEL REYNOLDS

Lífvarðasveit forseta Bandaríkjanna hefur greitt þrjú þúsund dali á mánuði í leigu lítillar kjallaraíbúðar nærri heimili Ivönku Trump, dóttur Donalds Trump forseta, og Jared Kushner í Washington DC svo þeir geti farið á klósettið.

Þetta hefur verið gert frá september 2017 og þegar leigusamningurinn rennur út í september mun fyrirkomulagið hafa kostað 144 þúsund dali. Það samsvarar um 18,6 milljónum króna.

Ástæðan fyrir þessu fyrirkomulagi er sögð sú að hjónin bönnuðu lífvörðum sínum að nota þau sex klósett sem finna má heimili þeirra.

Í byrjun var notast við kamra en svo fóru lífverðirnir að ferðast til heimilis Barack Obama, fyrrverandi forseta, sem býr þar nærri. Þar hafði bílskúr verið breytt í aðstöðu fyrir lífverðina. Það fyrirkomulag var þó stöðvað eftir að lífvörður Ivönku og Jared olli óreiðu á klósettinu, ef svo má að orði komast.

Þá byrjuðu lífverðirnir að fara heim til Mike Pence, varaforseta, sem býr í sama hverfi en þó tiltölulega langt í burtu, og gera þarfir sínar þar eða í veitingahúsum í hverfinu.

Að endingu var niðurstaðan sú að leigja kjallaraíbúð hjá nágranna þeirra hjóna.

Þetta kemur fram í frétt Washington Post. Talsmaður Hvíta hússins sagði þessa sögu ranga og að forsvarsmenn lífvarðasveitarinnar, sem kallast á ensku Secret Service, hafi tekið þá ákvörðun að lífverðirnir færu ekki inn á heimili hjónanna.

Heimildarmaður Washington Post segir þó að hjónin hafi meinað lífvörðunum að koma inn á um 460 fermetra heimili þeirra.

Þá segir miðillinn að nágrannar þeirra hjóna, sem eru margir hverjir á móti ríkisstjórn Trumps, hafi fylgst með ferðalögum lífvarðanna á milli húsa og um hverfið. Eins og áður segir var svo endað á því að leigja íbúðina.

Eigandi íbúðarinnar sagði Washington Post að það hefði ekki komið sér á óvart þegar lífverðirnir bönkuðu upp á. Hún hafi fylgst með ferðum þeirra lengi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×