Undanfarnar vikur hefur Trump varið miklu púðri í stoðlausar staðhæfingar um umfangsmikið kosningasvindl og grafið undan kjörsókn stuðningsmanna Repúblikana. Samhliða því hefur hann gagnrýnt leiðtoga flokksins í Georgíu og á landsvísu harðlega.
Meðal annars hefur hann fordæmt Repúblikana fyrir að vilja ekki senda Bandaríkjamönnum tvö þúsund dala ávísanir í stað 600 dala.
Sjá einnig: Stefnir í fullnaðarsigur Demókrata í Georgíu
Forsetinn sinnti ekki áköllum Repúblikana um að taka fyrr þátt í kosningabaráttunni og þegar hann hélt svo kosningafund í Georgíu varði hann mest öllum tíma sínum í að gagnrýna háttsetta Repúblikana í Georgíu fyrir að vilja ekki snúa niðurstöðum forsetakosninganna í ríkinu við.
Í samtali við Politico segja nokkrir Repúblikanar, sem vildu ekki koma fram undir nafni, að ósigurinn væntanlegi sé Trump að kenna og gefa þeir jafnvel mismunandi ástæður. Einhverjir segja að hann hefði þurft að taka virkari þátt í baráttunni og aðrir að hann hefði átt að halda sig til hlés.
Einn viðmælandi sagði þó að ljóst væri að þegar flokkurinn væri að reiða sig á mann sem hefði sjálfur tapað kosningum í ríkinu nokkrum vikum áður, væri flokkurinn ekki í góðri stöðu.
Enn ein kosningin um Trump
Kjósendur sem blaðamenn Washington Post ræddu við voru margir á þeirri skoðun að kosningarnar í Georgíu snerust í rauninni um Donald Trump. Margir vildu styðja forsetann og sögðu ljóst að sigrinum hefði verið stolið af honum í nóvember. Aðrir lýstu yfir andstöðu við hann.
Kjósendur sem ræddu við New York Times voru á svipuðum nótum. Frambjóðendurnir sjálfir væru ekki í forgangi heldur skoðun viðkomandi kjósenda á Trump og Repúblikönum í heild.
Þrír fjórðu þeirra sem kusu frambjóðendur Repúblikanaflokksins og tóku þátt í könnun AP fréttaveitunnar sögðu að sigur Joe Biden í forsetakosningunum í nóvember væri ólöglegur. Um 90 prósent þeirra sögðust viss um að atkvæði hefðu ekki verið rétt talin.
Í frétt AP segir að það sé mikil aukning frá fyrri kosningum. Útlit sé fyrir að ásakanir Trumps hafi fengið góðan hljómgrunn meðal kjósenda Repúblikanaflokksins.
Sjá einnig: Tóku Trump upp ef hann segði ósatt frá, sem hann svo gerði
AP segir einnig að Trump auki kjörsókn hjá báðum fylkingum. Kjósendur Repúblikana vilji styðja hann en á móti virðist hann auka kjörsókn mjög meðal kjósenda Demókrataflokksins.
Ein kona sem ræddi við Washington Post, sem var að greiða atkvæði í fyrsta sinn, sagðist verulega þrátt á látunum í kringum forsetann og sagðist vonast til þess að þessar kosningar myndu draga úr dramatíkinni.