Katrín Tanja Davíðsdóttir og Anníe Mist Þórisdóttir héldu áfram með hlaðvarpsþáttinn sinn „Dottir talks“ eða „Dóttir-spjallið“ og í öðrum þætti var komið að því að skoða upphafið, það er upphafið hjá Katrínu Tönju.
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Anníe Mist Þórisdóttir fóru yfir það hvernig Katrín Tanja byrjaði að æfa CrossFit á sínum tíma en Anníe Mist átti óaðvitandi mikinn þátt í því.
Anníe Mist Þórisdóttir var orðin stórstjarna og heimsmeistari í CrossFit áður en Katrín Tanja byrjaði að æfa íþróttina. „Ég held að það viti þetta ekki margir,“ sagði Anníe Mist um leið og hún spurði Katrínu hvernig hún kynntist CrossFit íþróttinni.
„Ég held að ég hafi alltaf verið mikil keppnismanneskja frá fæðingu. Ég var örugglega pirrandi sem barn því ég vildi keppa í öllu,“ sagði Katrín Tanja.
„Þarna var ég sextán ára gömul, ég hafði hætt í fimleikum og var að prófa frjálsar íþróttir. Ein af bestu vinkonum sínum, Heiðdís, hafði æft stangarstökk með þér. Hún var að segja mér frá íþróttinni sem þú varst í,“ sagði Katrín Tanja og hélt áfram.
„Hún sagði: Þú ert svolítið klikkuð eins og hún (Anníe) og til í að æfa mikið. Ég held að þú verðir hrifin af CrossFit,“ sagði Katrín Tanja.
„Ég prófaði CrossFit ekki þá og fór í eitt ár í viðbót í frjálsar. Svo var það sumarið 2011 þegar þú vinnur heimsleikana í CrossFit. CrossFit verður í framhaldinu gríðarlega vinsælt á Íslandi, allir fara að æfa um fjölmiðlarnir fjalla mikið um þetta. Þeir voru að sýna myndbönd af þér frá CrossFit leikunum,“ sagði Katrín Tanja.
„Mamma og amma voru að horfa á þig í sjónvarpinu. Ég hafði verið svolítið í lausu lofti þetta sumar því ég vildi ekki fara aftur í fimleikana eða vera áfram í frjálsum. Þær sögðu við mig: Af hverju prófar þú ekki þetta. Kannski verður þú góð í þessu. Ég hugsaði: Allt í lagi, ég ætla að prófa þetta,“ sagði Katrín Tanja.
„Ég vildi gera það sem þú varst að gera. Í einum af fyrstu tímunum mínum þá gengur Anníe Þórisdóttir inn í salinn til að kenn
a. Ég hugsaði bara: Guð minn góður, þetta er Anníe. Ég lagði ennþá meira á mig. Ég man eftir að þú hrósaðir mér einu sinni og þú mundir eftir nafninu mínu. Það er svo gaman að rifja þetta upp því ég leit svo mikið upp til þín og geri enn,“ sagði Katrín Tanja.
„Ég var með stjörnur í augunum þegar ég sá þig. Það er svo sérstakt að hugsa til baka um þetta nú þegar við sitjum hérna og ræðum þetta og þú ert besta vinkonan mín í öllum heiminum,“ sagði Katrín Tanja hlæjandi.
Það má hlusta á allt spjallið þeirra hér fyrir neðan.