Verð bandarískrar olíu hríðféll í dag vegna hárrar birgðastöðu og einstaklega lítillar eftirspurnar. Tunna af West Texas Intermediate lækkaði til að mynda um rúm 50 prósent í dag, samkvæmt frétt BBC. Tunnan kostaði minna en níu dali. Lækkunin er mismikil á milli vísitalna en heilt yfir segja miðlar ytra að verðið hafi ekki verið svo lágt í áratugi.
CNN segir stöðuna svo slæma í Bandaríkjunum að olíufyrirtæki séu nú að borga með olíunni.
Þetta er þrátt fyrir sögulegt samkomulag OPEC, Samtök olíuútflutningsríkja auk annarra samstarfsríkja með Rússland í fararbroddi, frá því í síðustu viku um að draga verulega úr olíuframleiðslu.
Upprunalega byrjaði olíuverð að lækka vegna lítillar eftirspurnar þar sem gripið var til félagsforðunar víða um heim vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Þá reyndu yfirvöld Sádi-Arabíu, sem stýra OPCE, að gera samkomulag við Rússa um að draga úr framleiðslu. Það vildu Rússar ekki gera og Sádar byrjuðu þá að auka framleiðslu verulega til að refsa Rússum.
Þessi mikla verðlækkun hefur komið verulega niður á olíuframleiðendum í Bandaríkjunum, þar sem framleiðslan er dýrari en annars staðar.
Sjá einnig: Í verðstríði Sáda og Rússa, tapa Bandaríkin
Sérfræðingar sem BBC ræddi við, segja að þrátt fyrir að OPEC og Rússar hafi sammælst um að draga úr framleiðslu um allt að fimmtung, dugi það ekki til til að ná aftur jafnvægi á mörkuðum. Eftirspurnin hafi dregist of mikið saman.
Því sé ekki einungis ósvarað hvort olía sem dælt verði úr jörðu verði notuð, heldur einnig hvort allir olíutankar heimsins fyllist áður en eftirspurnin tekur við sér.