Innlent

Gleðilegt nýtt ár, kæru lesendur

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Gleðilegt nýtt ár.
Gleðilegt nýtt ár. Vísir/vilhelm

Vísir sendir lesendum sínum nær og fjær – til sjávar og sveita – bestu óskir um farsælt nýtt ár. Megi árið 2021 færa okkur öllum frið og hamingju í hjarta.

Árið sem nú er á enda hefur verið viðburðarríkt sem aldrei fyrr - jafnvel fordæmalaust. Forsetakosningar, hópuppsagnir, náttúruhamfarir og auðvitað heimsfaraldur. Við vonum að bjartari tímar bíði á nýju ári og þökkum ykkur lesendum öllum kærlega fyrir samfylgdina.

Undanfarnar vikur hefur Vísir gert upp árið, bæði hér heima og erlendis. Hér má lesa uppgjörsfréttir fyrir árið 2020.

Um leið og við þökkum ykkur samfylgdina á árinu sem er að líða heitum við því að færa ykkur áfram traustar fréttir af öllu milli himins og jarðar.

Jafnframt minnum við á að lesendur geta sett sig í samband við einstaka fréttamenn með því að smella á nafn þeirra við greinar. Þá er hægt að senda tölvupóst á ritstjórnina á netfanginu ritstjorn@visir.is eða hafa samband í síma 512-5200.

Hér fyrir neðan má horfa á fréttaannál Stöðvar 2, sem sýndur var á næstsíðasta degi ársins og fer yfir það helsta sem gerðist á árinu.

Og hér fyrir neðan má horfa á Kryddsíldina 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×