Samkvæmt AP fréttaveitunni er talið að Trump muni náða fleiri áður en hann lætur af embætti þann 20. janúar. Vitað er til þess að hann og bandamenn hans hafi rætt um að náða fólk eins og Rudy Giuliani, einkalögmann hans, og jafnvel fjölskyldumeðlimi forsetans.
Meðal þeirra sem Trump náðaði í gær eru þingmennirnir Duncan Hunter og Chris Collins. Báðir eru meðal fyrstu þingmanna Repúblikanaflokksins sem lýstu yfir stuðningi við forsetaframboð Trumps árið 2016 og báðir hafa verið dæmdir í fangelsi.
Hunter var dæmdur til ellefu mánaða fangelsisvistar fyrir að misnota kosningasjóði sína. Hann átti að hefja afplánun sína í næsta mánuði.
Sjá einnig: Heitir því að koma þingmanni í fangelsi
Collins var tæmdur í rúmlega tveggja ára fangelsi fyrir að hjálpa syni sínum og öðrum að komast undan 800 þúsund dala tapi í hlutabréfaviðskipum, með því að nota upplýsingar sem hann öðlaðist sem þingmaður, og fyrir að ljúga að útsendurum Alríkislögreglu Bandaríkjanna.
Sjá einnig: Þingmaður segir af sér vegna innherjaviðskipta
Trump náðaði einnig fyrrverandi þingmanninn Steve Stockman, sem var árið 2018 dæmdur til tíu ára fangelsisvistar fyrir svik og fjárþvætti.
Í hópnum eru einnig fjórir fyrrverandi starfsmenn málaliðafyrirtækisins Blacwater Worldwide.
Þeir Nicholas Slatten, Paul Slough, Evan Liberty og Dustin Heard störfuðu sem svokallaðir öryggisverktakar eða málaliðar og voru meðal annars við störf í Írak á árum áður. Allir fjórir voru dæmdir til langra fangelsisdóma fyrir að myrða almenna borgara í Írak þegar þeir skutu á fólk og köstuðu handsprengjum að borgurum á Nisour torgi.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Trump náðar menn sem dæmdir hafa verið fyrir stríðsglæpi.
Trump náðaði einnig George Papadopoulos, sem var dæmdur í ellefu daga fangelsi fyrir að ljúga að útsendurum Alríkislögreglu Bandaríkjanna um samskipti sín við maltverskan prófessor um að Rússar hefðu komið höndum yfir tölvupósta Hillary Clinton, mótframbjóðanda Trumps 2016, áður en það varð opinbert.
Upphaf Rússarannsóknarinnar svokölluðu, á meintu samráði framboðs Trumps og yfirvalda í Rússlandi varðandi afskipti þeirra síðarnefndu af forsetakosningunum 2016, má rekja til þess að Papadopoulos sagði áströlskum erindreka í London árið 2016 að Rússar sætu á tölvupóstum Clinton.
Sjá einnig: Fyrrum ráðgjafa Trump-framboðsins skipað að hefja afplánun
Trump náðaði þar að auki hollenska lögfræðinginn Alex van der Zwaan, sem tengist Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóra Trumps, og var dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að ljúga að útsendurum FBI. Nánar tiltekið um stöf sín í Úkraínu með Manafort og Rick Gates.
Van der Zwaan og Gates funduðu með viðskiptafélaga þeirra sem vann áður fyrir leyniþjónustu Rússlands og sagði hann ósatt um þessa fundi.
Þá felldi forsetinn niður dóm Philip Esformes sem var í fyrra dæmdur til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir fjársvik í tengslum við heilbrigðistryggingakerfi Bandaríkjanna og mútugreiðslur í Flórída, svo eitthvað sé nefnt.
Hvíta húsið segir að tveir fyrrverandi ríkissaksóknarar, Edwin Meese og Michael Mukasey, hafi lagt til að dómur Esformes yrði felldur niður.
Demókratar hafa brugðist reiðir við því að Trump hafi náðað Papadopoulos og van der Zwann og segja það grafa undir réttarríkinu. Hann sé að verðlauna bandamenn sína með valdi forsetaembættisins.
„Af þú lýgur fyrir forsetann færðu náðun. Ef þú ert spilltur stjórnmálamaður sem studdir Trump, færðu náðun. Ef þú myrðir almenna borgara í stríði, færðu náðun.“
Þetta sagði Adam B. Schiff, einn leiðtoga Demókrataflokksins, á Twitter í gærkvöldi.
Lie to cover up for the president? You get a pardon.
— Adam Schiff (@RepAdamSchiff) December 23, 2020
Corrupt politician who endorsed Trump? You get a pardon.
Murder innocent civilians? You get a pardon.
Elect a corrupt man as president?
You get a corrupt result.
New York Times vitnar í lagaprófessor við Harvard háskólann sem segir að um 88 prósent þeirra sem Trump hafi náðað hingað til tengist honum eða bakhjörlum hans persónulega. Lang flestar náðanir forsetans hafi ekki farið í gegnum dómsmálaráðuneytið eins og hefð sé fyrir, heldur séu þær til komnar vegna ráðlegginga vina og vandamanna.
Til að mynda, þá er Erik Prince, fyrrverandi yfirmaður Blackwater, náinn bakhjarl Trumps, og Betsy DeVos, menntamálaráðherra Bandaríkjanna, er systir Prince.
Vona að manafort verði náðaður
Trump hefur þó náðað mun færri menn en fyrri forsetar Bandaríkjanna en eins og áður segir er von á frekari náðunum áður en Trump lætur af embætti.
Í grein NYT segir einnig að margir bandamenn Trumps vonist til þess að forsetinn muni náða Paul Manafort. Hann samþykkti að starfa með rannsakendum Alríkislögreglu Bandaríkjanna vegna Rússarannsóknarinnar en saksóknarar sökuðu hann seinna meir um að hafa afvegaleitt þá. Hann hefði ekki aðstoðað við rannsóknina.
Þeir Rick Gates og Michael D. Cohen, sem báðir voru einnig dæmdir vegna Rússarannsóknarinnar, störfuðu með saksóknum og er ekki búist við því að Trump muni náða þá.