„Ég upplifði að það væri ekki mikið úrval af fatnaði til fyrir mig í verslunum“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 17. desember 2020 11:30 Marko Svart hönnuður er viðmælandi í Á bakvið vöruna. Sjálfbærni er stór hluti af merkinu hans svartbysvart. Blóð stúdíó „Vörumerkið mitt svartbysvart er fullkomlega kynlaust fatamerki. Föt og aukahlutir eru handgerð af mér í Reykjavík. Allt í versluninni er unnið af mér eða makanum mínum Momo, sem er meðeigandi.“
Þriðja myndbandið í seríunni Á bak við vöruna snýr að finnsk-sænska fjöllistamanninum og hönnuðinum, Marko Svart. Hann rekur fatamerki og verslun sem bera nafnið svartbysvart á Týsgötu ásamt meðeigandanum sínum og maka, Momo. Öll myndböndin verða sýnd hér á Vísi. „Allt sem við gerum er unnið innanhúss en það er mjög mikilvægur hluti af vörumerkinu okkar og því sem það stendur fyrir.“ Helstu áherslur merkisins er sjálfbærni í efnisnotkun og nytjavali enda segir Marko að fataiðnaðurinn hafi nú þegar mengað of mikið „Ég held að í nútímasamfélagi sé of auðvelt að nálgast allt sem þú vilt. Fjöldaframleiðsla er svo mikil að mér finnst heimurinn vera svolítið plastkenndur.“ Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Á bakvið vöruna - svartbysvart Tabú að versla í kvennadeildinni Stórt einkenni svartbysvart er að allur fatnaðurinn er kynlaus. „Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að hanna fatnað er að ég upplifði að það væri ekki mikið úrval af fatnaði til fyrir mig í verslunum. Mér fannst karlmannsfatnaður alltaf vera einfaldur og leiðinlegur. Þannig séð er það enn tabú fyrir karlmann að versla í kvennadeildinni. Ég er ekki að reyna að rjúfa niður neina múra, ég hef ekkert á móti karlleika eða kvenleika.“ Marko varð fyrir innblæstri eftir heimsókn til Íslands þar sem hann kynntist íslenskum hönnunarverslunum þar sem hönnuðirnir afgreiddu vörurnar sínar sjálfir. Frá þeim degi vissi hann að Ísland væri sá staður sem hann myndi opna sína fyrstu verslun. Gríðarleg tækifæri Verkefnið Á bak við við vöruna er röð örmyndbanda í heimildarmyndaformi frá Blóð stúdíó. Í þáttunum er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar. Íslensk hönnun er ungt fag í stöðugum vexti og henni fylgir gríðarleg tækifæri í atvinnu- og verðmætasköpun. Markmið myndbandanna er að auka sýnileika fagsins og draga fram raunhæfa mynd af einstaklingunum sem þar standa á bak við og hvernig vörur þeirra verða til - allt frá hugmynd, yfir að söluvænni vöru í verslun. Með því að auka þennan sýnileika og samtímis fræða áhorfandann er verið að virkja hann sem mögulegan neytenda og þar með stuðla að aukinni sjálfbærni hönnunar og að uppvexti þess frumkvöðlastarfs innanlands.
Reykjavík Tíska og hönnun Umhverfismál Á bak við vöruna Tengdar fréttir Stofnuðu fyrirtækið svo þeir gætu boðið kærustunum veglega út að borða „Kormákur & Skjöldur er 25 ára gamalt vörumerki sem að hefur svolítið skemmtilega sögu í raun. Vegna þess að hún var eingöngu stofnuð á milli jóla og nýárs fyrir 25 árum, bara til að búa til pening þannig að Kormákur og Skjöldur gætu farið með kærusturnar veglega út að borða á nýárskvöld, það var nú ekki dýpra en það.“ 10. desember 2020 14:00 „Þetta er eiginlega eins og fjársjóðsleit“ „Hluti af hugmyndafræðinni á bakvið Aftur er að sýna fólki fram á að það eru aðrar leiðir til að vera í tísku, starfa innan tískunnar, að endurvinna eldri fatnað til að búa til nútímafatnað,“ segir Bára Hólmgeirsdóttir hönnuður, eigandi og stofnandi Aftur. 3. desember 2020 10:33 „Við erum með hörkureynslu í farteskinu“ Erna Hreinsdóttir og Ásgrímur Már Friðriksson hafa farið af stað með nýtt hönnunar- og markaðsstúdíó þar sem þau geta nýtt einstaklega vel sína reynslu úr tískubransanum. Þau hafa síðustu vikur unnið örþætti um fatahönnun í miðborginni og fer fyrsti þáttur í loftið á Vísi á morgun. 2. desember 2020 22:00 Mest lesið Lést eftir að hafa fallið úr bíl á ferð Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Brúðkaup ársins 2024 Lífið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Króli trúlofaður Lífið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Fleiri fréttir Skemmtileg tískuslys og eftirminnileg jólaföt Stjörnum prýtt hönnunar húllumhæ í Húrra Fagnaði tvítugsafmælinu í Vivienne Westwood Opnuðu sjóðheitt hönnunarstúdíó með stæl Best klæddu Íslendingarnir 2024 Sænsk tískudrottning sögð kúga starfsfólk sitt Húrrandi stemning í opnun Húrra Rúbínrauðu skór Dóróteu seldust á 3,8 milljarða Seldist upp daginn eftir kosningasigur Kristrúnar Logi Pedro með hönnunarlínu: „Ég verð að gera þetta sjálfur“ Djörf á dreglinum Laxahattar komnir aftur í tísku hjá háhyrningum Steldu stílnum af Samfylkingar-Rögnu Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Heitustu tískuskvísur landsins fögnuðu Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Flott klæddir feðgar Fagurfræði: Hvernig förðum við mismunandi húðtýpur? Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Sjá meira
Stofnuðu fyrirtækið svo þeir gætu boðið kærustunum veglega út að borða „Kormákur & Skjöldur er 25 ára gamalt vörumerki sem að hefur svolítið skemmtilega sögu í raun. Vegna þess að hún var eingöngu stofnuð á milli jóla og nýárs fyrir 25 árum, bara til að búa til pening þannig að Kormákur og Skjöldur gætu farið með kærusturnar veglega út að borða á nýárskvöld, það var nú ekki dýpra en það.“ 10. desember 2020 14:00
„Þetta er eiginlega eins og fjársjóðsleit“ „Hluti af hugmyndafræðinni á bakvið Aftur er að sýna fólki fram á að það eru aðrar leiðir til að vera í tísku, starfa innan tískunnar, að endurvinna eldri fatnað til að búa til nútímafatnað,“ segir Bára Hólmgeirsdóttir hönnuður, eigandi og stofnandi Aftur. 3. desember 2020 10:33
„Við erum með hörkureynslu í farteskinu“ Erna Hreinsdóttir og Ásgrímur Már Friðriksson hafa farið af stað með nýtt hönnunar- og markaðsstúdíó þar sem þau geta nýtt einstaklega vel sína reynslu úr tískubransanum. Þau hafa síðustu vikur unnið örþætti um fatahönnun í miðborginni og fer fyrsti þáttur í loftið á Vísi á morgun. 2. desember 2020 22:00