Von á enn meiri rigningu á Austfjörðum í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2020 07:37 Frá Seyðisfirði. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Áfram má reikna með norðaustanátt í dag en að vind lægi þó aðeins. Spáð er lítilsháttar úrkomu norðan- og austanlands, rigningu eða slyddu við ströndna en snjókomu í innsveitum. Í kvöld má svo aftur búast við talsverðri rigningu á Austfjörðum.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef veðurstofunnar. Hiti verður á bilinu 0 til 8 stig þar sem mildast verður syðst á landinu. „Veðrið breytist lítið á morgun, ákveðin norðaustanátt og úrkoman mest við austurströndina. Heldur kólnandi veður og á föstudag er spáð slyddu eða snjókomu á norðanverðu landinu, en áfram talsverðri rigningu austast.“ Mikið hefur rignt á Austfjörðum síðustu daga, en akmannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir hættustigi vegna skriðuhættu á Seyðisfirði og óvissustigi á Austurlandi. Búið er að rýma um fimmtíu hús undir Botnabrún á Seðisfirði eftir að skriður féllu úr hlíðinni síðdegis í gær. Spákortið fyrir hádegið eins og það leit út í morgun.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustanátt, víða 8-15 m/s. Þurrt á S- og V-landi, annars rigning eða slydda með köflum, einkum A-lands en dálítil snjókoma í innsveitum. Hiti yfirleitt á bilinu 0 til 5 stig. Á föstudag: Norðaustan 10-18 með slyddu eða snjókomu N- og A-lands, en talsverðri rigningu á Austfjörðum. Hiti 1 til 6 stig sunnan heiða, en nálægt frostmarki N-til á landinu. Á laugardag: Norðlæg átt með slyddu eða snjókomu og rigningu austast, en yfirleitt þurrt S- og V-lands. Hiti kringum frostmark. Á sunnudag og mánudag (vetrarsólstöður): Norðaustanátt með snjókomu og síðar éljum um landið norðan- og austanvert. Kólnandi veður. Á þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt og sums staðar él.
Veður Aurskriður á Seyðisfirði Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Sjá meira