Óvissustig vegna skriðuhættu er nú í gildi á Austfjörðum en því var lýst eftir að skriðurnar féllu rétt fyrir klukkan þrjú, að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar.
Tvær aurskriður féllu úr Botnum. Annarsvegar niður í Botnahlíð og hins vegar á Austurveg. Önnur skriðan féll á hús en samkvæmt fyrstu upplýsingum eru skemmdir sagðar óverulegar. Þá hafa engar upplýsingar borist um slys á fólki.
Hús rýmd og íbúar varaðir við
Almannavarnir hafa ákveðið að rýma hluta af svæði C á Seyðisfirði. Rýma þarf eða vara íbúa við að hafast ekki við fjallsmegin í húsum á C-svæði undir Botnum frá Dagmálalæk að Búðará. Einnig B- og C-svæði ofan Gamla Austurvegar, og Austurveg 42, Hafnargata 18b til 38a, ofan götunnar.
Sleppa má Botnahlíð 9, 11 og 13. Rauði kross Íslands hefur opnað fjöldahjálparstöð í Herðubreið á Seyðisfirði. Jafnframt er ástæða til þess að vara umsjónarmenn í síldarverksmiðjunni SR-Mjöli við skriðuhættu og óskað eftir að starfsfólk og aðrir íbúar séu upplýst um hættu a svæðinu.

Mikið hefur rignt síðustu sex sólarhringa á Austfjörðum og sem dæmi má nefna að uppsöfnuð úrkoma á Seyðisfirði er komin yfir 350 mm.
Jarðvegur í neðri hluta hlíða er orðinn vatnsmettaður og skriður hafa fallið neðarlega í hlíðum bæði á Eskifirði og Seyðisfirði. Spáð er áframhaldandi úrkomu sem verður þó snjókoma niður fyrir miðjar hlíðar.
Flæðir báðum megin við húsið
Vilborg Diljá Jónsdóttir, íbúi í Botnhlíð, segir fyrstu skriðuna hafa fallið á húsið hennar og eiginmanns hennar um klukkan þrjú. Aurskriðan nái vel upp á gluggann sem snúi upp í fjallið.
„Svo flæðir sitt hvoru megin við húsið. Ef þetta stoppar ekki þá flæðir inn í húsið,“ segir Diljá.
Búið er að loka götunni að sögn Diljá sem er flúin á hótel en þau hjónin reka Ölduna á Seyðisfirði.
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir á annan tug manna í því að rýma svæðið og vakta það. Engar lífsbjargandi aðgerðir séu í gangi en unnið sé úr greiningu með sérfærðingum í ofanflóðum varðandi hættuna á svæðinu.

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands lýsa yfir óvissustigi almannavarna á Seyðisfirði eftir að tvær aurskriður féllu úr Botnum annarsvegar niður í Botnahlíð og á Austurveg. Önnur skriðan féll á hús en samkvæmt fyrstu upplýsingum eru skemmdir sagðar óverulegar. Þá hafa engar upplýsingar borist um slys á fólki.
Aðgerðarstjórn hefur verið virkjuð á svæðinu. Tekin hefur verið ákvörðun um að rýma hluta af svæði svæði C á Seyðisfirði. Rýma þarf eða vara íbúa við að hafast ekki við fjallsmegin í húsum á C-svæði undir Botnum frá Dagmálalæk að Búðará. Einnig B- og C-svæði ofan Gamla Austurvegar, og Austurveg 42, Hafnargata 18b til 38a, ofan götunnar.
Sleppa má Botnahlíð 9, 11 og 13. Rauði kross Íslands hefur opnað fjöldahjálparstöð í Herðubreið á Seyðisfirði.
Jafnframt er ástæða til þess að vara umsjónarmenn í SR-Mjöli við skriðuhættu og óskað eftir að starfsfólk og aðrir íbúar séu upplýst um hættu a svæðinu.
Skriðuhætta hefur verið á Austurlandi vegna mikilla rigninga undanfarna daga. Jörð er orðin vatnsmettuð eftir rigningu, snjóbráð og hlýinda síðustu daga.
Tilkynning frá Landsbjörg
Um kl. 14:45 féllu tvö aurflóð á Seyðisfirði – annað lítið en hitt sýnu stærra og náði að byggð. Tjón var óverulegt en einhverjir lausamunir runnu úr görðum. Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi og kallað út björgunarsveitarfólk til að rýma hluta af áhrifasvæði flóðanna, vakta umferð um svæðið og huga að íbúm. Sú vinna er nú í gangi.


