Lazio og Hellas Verona mættust í síðasta leik dagsins í ítalska boltanum en liðin voru á svipuðum slóðum rétt fyrir aftan efstu lið þegar kom að leik kvöldsins.
Gestirnir fóru með forystu í leikhléið þar sem Manuel Lazzari varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Felipe Caicedo jafnaði metin fyrir Lazio snemma í síðari hálfleik en það var Adrien Tameze sem tryggði gestunum sterkan 1-2 sigur.
Hellas Verona þar með komið í 6.sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar en Lazio er í því áttunda.

Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.