Annað myndbandið frá verkefninu Á bak við vöruna er helgað merkinu Kormákur & Skjöldur, sem hefur starfað í aldarfjórðung og verið eitt af leiðandi herramerkjum Íslands. Viðmælandi er Gunni Hilmarsson hönnuður og fer hann yfir sögu og starfsemi fyrirtækisins.
„Kormáks & Skjaldar línan er búin að vera í þróun í raunninni í níu ár.“
Gunni segir að á meðan dömubransinn sé mjög hraður þá sé herrabransinn mjög hægur.
„Þá er alltaf verið að nota það sem hefur verið gert áður. Þetta snýst um að fullkomna sniðin, fullkomna conceptið.“
Hingað til hefur fatamerkið verið þekkt fyrir klassískan herrafatnað en undanfarin ár hefur Kormákur & Skjöldur sótt í sig veðrið hvað varðar í nýsköpun og þeim hefur tekist að búa til tweed efni sem er alfarið unnið úr íslenskri ull.
Myndböndin verða alls sex talsins og verða þau öll sýnd hér á Vísi. Hægt er að horfa á örmyndbandið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Raunhæf mynd af fólkinu á bak við merkin
Verkefnið Á bak við við vöruna er röð örmyndbanda í heimildarmyndaformi sem skyggnist inn í heim frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar. Íslensk hönnun er ungt fag í stöðugum vexti og henni fylgir gríðarleg tækifæri í atvinnu- og verðmætasköpun. Blóð stúdíó fékk styrk frá Miðborgarsjóði fyrir verkefninu en á bak við hönnunar- og markaðsstúdíóið eru þau Erna Hreinsdóttir og Ásgrímur Már Friðriksson.
Markmið myndbandanna er að auka sýnileika fagsins og draga fram raunhæfa mynd af einstaklingunum sem þar standa á bak við og hvernig vörur þeirra verða til - allt frá hugmynd, yfir að söluvænni vöru í verslun.
Með því að auka þennan sýnileika og samtímis fræða áhorfandann er verið að virkja hann sem mögulegan neytenda og þar með stuðla að aukinni sjálfbærni hönnunar og að uppvexti þess frumkvöðlastarfs innanlands.