Rannsóknarverkefni LHÍ fær tvær milljónir evra í styrk frá Evrópska rannsóknarráðinu Samúel Karl Ólason skrifar 9. desember 2020 15:59 Í tilkynningu frá LHÍ segir að þetta sé hæsti styrkur sem rannsóknarráðið veitir einstaklingum sem þyki skara fram úr á sínum sviðum og hafa íslenskir vísindamenn einungis fengið hann fjórum sinnum áður. Rannsóknarverkefni á vegum Listaháskóla Íslands hefur hlotið tveggja milljóna evru styrk frá Evrópska rannsóknarráðinu. Verkefnið kallast „Snjallhljóðfæri: að skilja gervigreind 21 aldar gegnum skapandi tónlistartækni“ og hlýtur dr. Þórhallur Magnússon, prófessor og deildarforseti tónlistardeildar Sussex háskóla í Englandi og rannsóknaprófessor við Listaháskóla Íslands styrkinn.
Tvær milljónir evra samsvara rúmum 300 milljónum króna. Í tilkynningu frá LHÍ segir að þetta sé hæsti styrkur sem rannsóknarráðið veitir einstaklingum sem þyki skara fram úr á sínum sviðum og hafa íslenskir vísindamenn einungis fengið hann fjórum sinnum áður. Verkefnið er sagt boða tímamót fyrir LHÍ og rannsóknir á fræðasviðið lista hér á landi. Haft er eftir Þórhalli í tilkynningunni að um gífurlegan heiður sé að ræða. „Ég hef verið að vinna í rannsóknum á tölvutónlist og gervigreind í yfir tvo áratugi og áhugi minn hefur sífellt verið að færast lengra í átt að heimspekilegri þýðingu þess að nota gervigreind við skapandi vinnu. Hvernig túlkum við það þegar börnin okkar teikna Óla Prik í einhverju smáforriti og útkoman líkist verkum Van Gogh, eða unglingar spila inn melodíu sem er útsett í stíl Mahlers? Hvaða orð notum við til að tala um þessa hluti? Hver er skapandinn þegar ljóðskáld notar gervigreind sem hefur lesið allar útgefnar íslenskar bókmenntir til að hjálpa sér við ljóðasmíði?“ Dr. Þórhallur Magnússon, prófessor og deildarforseti tónlistardeildar Sussex háskóla í Englandi og rannsóknaprófessor við Listaháskóla Íslands. Þórhallur segir þetta ekki einfaldar spurningar og það sé ekkert eitt fræðasvið sem geti svarað þeim. „Þess vegna hef ég þróað verkefni til að vinna í þverfaglegu samstarfi við sérfræðinga í tónlist, heimspeki, hugrænum vísindum (e. cognitive science), tölvuvísindum og félagsfræði. Í verkefninu er hljóðfæri notað sem brennipunktur til að rannsaka þessar spurningar. Rannsóknarteymið mun smíða hljóðfærin, nota þau í tónlistarflutningi og skapa grundvöll fyrir þátttöku almennings við að þróa þau hugtök og orðræðu sem við þurfum á að halda til að við getum almennilega rætt tilkomu gervigreindar sem skapandi afls í verkum okkar. Þrátt fyrir heimspekilega og hugvísindalega skírskotun verkefnisins þá eru rætur þess í tónlist og mér fannst Listaháskóli Íslands því vera ákjósanlegt umhverfi fyrir vinnu við þessa rannsókn.“ Sérfræðingar á ýmsum sviðum koma að rannsókninni Í áðurnefndri yfirlýsingu segir einnig að rannsóknin spanni svið gervigreindar, tónlistar og hugvísinda, og skapi alþjóðlegan vettvang til þverfaglegs samstarfs milli háskóla og menningarstofnana. Það sé leitt af Þórhalli með þátttöku sérfræðinga á sviði heimspeki, hugrænna vísinda, tölvunarfræði og hljóðfæragerðar. Samstarfsaðilar verkefnisins hér á landi eru m.a. Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Mengi, en meðal erlendra samstarfsaðila eru Cambridge Digital Humanities, Sussex Humanities Lab og Ircam. Rannsóknin mun standa yfir í fimm ár og verða þrír doktorsnemar, tveir nýdoktorar og hjóðfærahönnuður ráðnir til verkefnisins. „Styrkveitingin er vitaskuld stórkostlegur áfangi fyrir Þórhall Magnússon og hans feril í háskólastarfi. Sú viðurkenning sem rannsóknum á fræðasviði lista hlotnast með þessari styrkveitingu er einnig mikill ávinningur og endurspeglar skýrt vægi fræðasviðsins í samtímanum. Ekki einungis hér á landi heldur í allri Evrópu, þar sem listrannsóknum hefur vaxið mjög hratt fiskur um hrygg", segir Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands í áðurnefndri tilkynningu. Hún segir einnig að listirnar séu þess eðlis að þær spanni alla þá þætti sem lúti að mannlegri hegðun og hugsun. Einnig þegar komið að rannsóknum. „Styrkur listanna í gegnum aldirnar hefur ætíð legið í greiningu á kjarna mennskunnar, á því sem knýr hugsun okkar, vitsmuni og samfélagslega þróun áfram. Sú staðreynd á sannarlega enn við í samtímanum, enda er rannsóknarverkefni Þórhalls mjög gott dæmi um þá víðu skírskotun og þverfaglegu nálgun sem felast í listum, hvort heldur litið er til sjálfs sköpunarferlisins eða rannsóknaráherslna. Listunum er með öðrum orðum ekkert óviðkomandi eins og vel sést í þeim víðfeðmu efnistökum sem rannsókn Þórhalls mun byggja á þar sem útgangspunkturinn er eigi að síður aðferðarfræði frumsköpunarinnar og þess slagkrafts sem felst í miðlun lista. Það traust sem fræðasviðinu og Listaháskólanum er sýnt með þessari styrkveitingu, markar að mínu mati tímamót í fjármögnun rannsóknarumhverfis háskóla hér á landi. Og sannar um leið - ef einhver skyldi hafa hafa efast - að Listaháskólinn á fullt erindi inn í heim háskólarannsókna á jafningjagrundvelli.“ 2 MILLJÓNA EVRA STYRKUR TIL LISTAHÁSKÓLANS! Tímamótastyrkur til rannsóknaverkefnis á vegum Listaháskóla...Posted by Listaháskóli Íslands on Wednesday, 9 December 2020
Menning Skóla - og menntamál Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Fleiri fréttir Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Sjá meira