Innlent

Ósammála Kára um forgang í bólusetningu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Samsett/vilhelm

Sóttvarnalæknir kveðst ósammála forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar um að heilbrigðisstarfsmenn ættu ekki endilega að vera í forgangi í bólusetningu við kórónuveirunni. Sóttvarnalæknir segir að þegar bólusetningar hefjist verði miðað við að heilbrigðisstarfsmenn sem eru í samskiptum við sjúklinga verði í forgangi.

Vonir eru bundnar við að bólusetningar gætu hafist hér á landi á fyrri hluta næsta árs, þó að ekkert sé enn fast í hendi í þeim efnum. Talsvert hefur verið rætt um hverjir verði bólusettir fyrst þegar bóluefni kemur á markað og í flestum tilvikum hafa heilbrigðisstarfsmenn, einkum þeir sem eru í mikilli smithættu í störfum sínum, verið settir í efsta forgang. 

Umfjöllun um forgangsröðun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar má til að mynda nálgast hér fyrir neðan.

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar var inntur eftir því hvað honum þætti um þessa forgangsröðun í þættinum 21 á Hringbraut í gær. Hann sagði að í sínum huga væri þetta „ekki endilega rétta röðin“.

„Vegna þess að þegar við skoðuðum mótefni í Íslendingum þá skoðuðum við sérstaklega mótefni í starfsmönnum Landspítalans og heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og komumst að raun um að það var nákvæmlega sami hundraðshluti af heilbrigðisstarfsmönnum og Íslendingum almennt sem hafði sýkst. Sem bendir til þess að heilbrigðisstarfsmenn séu ekkert meira útsettir fyrir smiti en aðrir,“ sagði Kári.

„Þannig að ég held að heilbrigðisstarfsmenn í flestum tilfellum eigi ekki að vera í forgangshópi heldur þeir sem eru með undirliggjandi sjúkdóma, þeir sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir svona smitum, þeir sem hefur verið sýnt fram á að séu sérstaklega líklegir til að smitast.“

Viðbúið að verði metingur

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir var spurður út í þetta mat Kára á upplýsingafundi almannavarna vegna veirunnar í dag. Hann tók ekki undir með þeim síðarnefnda.

„Ég er ósammála Kára í þessu. Heilbrigðisstarfsmenn í „sjúklingakontakt“ verða í forgangi hjá okkur og eru það líka samkvæmt tilmælum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Þannig að við munum hafa það að leiðarljósi.“

Þá var Þórólfur spurðir hver ynni að áætlun um forgangsröðunina hér á landi og hverjir yrðu síðastir í röðinni. Hann sagði að sóttvarnalæknir bæri ábyrgð röðuninni, sem reyndar kæmi líka inn í reglugerð.

„Við erum að vinna að því en ég er ekki tilbúinn að tala um einstaka hópa. Við vitum að það mun koma, sérstaklega ef það verður takmarkað aðgengi að bóluefni, að það muni koma metingur milli starfsgreina og einstaklinga en við munum bara taka á því þegar þar að kemur,“ sagði Þórólfur.


Tengdar fréttir

Himinlifandi með niðurstöður tilrauna

Bóluefni Oxford og AstraZeneca við kórónuveirunni myndar sterk ónæmisviðbrögð hjá fólki á sjötugs- og áttræðisaldri. Þetta kom fram í grein sem rannsakendur birtu í læknaritinu Lancet í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×