Þjálfaralaust lið Dana vann þjálfaralaust lið Svía Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. nóvember 2020 20:31 Jonas Wind skoraði fyrra mark Danmerkur í kvöld. Lars Ronbog/Getty Images
Danmörk og Svíþjóð mættust í æfingaleik í knattspyrnu í kvöld á Parken í Danmörku. Fór það svo að Danir unnu 2-0 sigur þrátt fyrir að vera án þjálfara síns og átta leikmanna sem áttu að vera í leikmannahópnum sökum kórónuveirunnar. Eftir að Robert Skov greindist með kórónuveiruna þá var ákveðið að þjálfari liðsins, Kasper Hjulmand, og aðstoðarþjálfarinn Morten Wieghorst færu í einangrun sem og átta leikmenn landsliðsins. Það eru þeir Frederik Rønnow, Yussuf Poulsen, Rasmus Falk Jensen, Pione Sisto, Anders Dreyer, Erik Sviatchenko, Alexander Scholz og Martin Braithwaite. Raunar vantaði fjölda leikmanna í bæði lið. Engir leikmenn Dana sem spila á Englandi fá að taka þátt í landsliðsverkefinu vegna kórónuveirusmita sem komu upp í minkabúum í Danmörku. Fjölda leikmanna vantaði í sænska liðið og þá var Janne Andersson, þjálfari liðsins, einnig fjarverandi í kvöld. Líkt og Hjulmand greindist hann með kórónuveiruna. Eftir markalausan hálfleik gerði danska liðið þrjár breytingar og tók í raun alla sína bestu menn af velli. Þeir Christian Eriksen, Kasper Dolberg og Thomas Delaney fóru allir af velli, eftir það tóku Danir öll völd. Jonas Wind, samherji Ragnars Sigurðssonar hjá FC Kaupmannahöfn, skoraði eftir rétt rúman klukkutíma leik og Alexander Bahr tryggði sigur Dana með öðru marki liðsins á 74. mínútu leiksins. Lokatölur 2-0 og Danir því með montréttinn að sinni.
Fótbolti Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Sjá meira