IKEA lokar vegna hertra aðgerða Birgir Olgeirsson skrifar 30. október 2020 17:30 Verslun Ikea í Garðabæ. Vísir/Vilhelm
IKEA mun loka verslun sinni vegna hertra aðgerða sem taka gildi á miðnætti. Þá mega aðeins tíu koma saman en matvöruverslanir og lyfjaverslanir eru undanþegnar þar sem allt að fimmtíu mega koma saman. Stefán Rúnar Dagsson, framkvæmdastjóri IKEA, segir stjórnendur IKEA hafa fundað í allan dag og skoðað ýmsar útfærslur. Niðurstaðan var hins vegar sú að loka versluninni og einbeita sér alfarið að netverslun og heimsendingu líkt og fyrirtækið gerði í fyrstu bylgju faraldursins í vor. „Við sjáum ekkert annað í stöðunni. Við erum búin að lesa reglugerðina fram og til baka en hún er mjög skýr,“ segir Stefán. Ekki komi til greina að hólfa verslunina niður og leyfa aðeins tíu í hverju hólfi. „Við erum með nokkur hólf. Ef tíu yrðu í hverju hólfi værum við með 70 í búðinni. Það bara tekur því ekki. Við teljum að við getum náð betri árangri með því að sinna netverslun og heimsendingu vel,“ segir Stefán. Spurður hvort hann hafi áhyggjur af jólaversluninni svarar Stefán því neitandi. Hann vonist til að aðgerðirnar muni bera árangur og muni því einungis standa yfir í tvær vikur. Aðspurður segist hann geta opnað verslunina aftur ef 50 verður leyft að koma saman.
IKEA Samkomubann á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Garðabær Verslun Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukningu á verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukningu á verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Sjá meira