Bátur sökk í Stöðvarfjarðarhöfn Vésteinn Örn Pétursson skrifar 25. október 2020 10:04 Frá höfninni í morgun. Björgvin Valur Guðmundsson
Togbáturinn Drangur ÁR 307 sökk í höfninni á Stöðvarfirði í morgun. Frá þessu er greint á vef Austurfréttar. Þar kemur fram að nú sé unnið að því að koma upp girðingum í kring um bátinn, til þess að varna því að hann mengi út frá sér. Austurfrétt greinir þá frá því að löndun úr öðrum bát í höfninni hafi staðið yfir þegar tekið var eftir því að Drangur hafi verið farinn að halla heldur mikið. Afturtog hafi þá slitnað og báturinn farið hratt niður á botn. Engin slys urðu á fólki. Björgunarsveitir frá Fáskrúðsfirði og Breiðdalsvík voru kallaðar út, ásamt slökkviliði, til þess að setja upp girðingar til þess að koma í veg fyrir að mengun berist frá bátnum. Þá er von á að varðskipið Þór, sem er á Fáskrúðsfirði, haldi til Stöðvarfjarðar vegna bátsins. Uppfært klukkan 12:20: Á ellefta tímanum kom varðskipið Þór til Stöðvarfjarðar, samkvæmt Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Kafarar gæslunnar kanna ástand skipsins núna. Hluti áhafnar skipsins fór á undan skipinu á léttbát til Stöðvarfjarðar og aðstoðaði við að koma upp mengunargirðingu við skipið í morgun. Gert er ráð fyrir að Þór verði til taks á staðnum í dag.
Fjarðabyggð Landhelgisgæslan Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira