Juventus fékk Hellas Verona í heimsókn í síðasta leik helgarinnar í ítölsku úrvalsdeildinni en ítölsku meistararnir leika án sinnar skærustu stjörnu, Cristiano Ronaldo, þessa dagana þar sem hann glímir við kórónuveiruna.
Verona komst í forystu með marki Andrea Favilli á 60.mínútu.
Svíinn Dejan Kulusevski jafnaði metin fyrir Juventus á 77.mínútu.
Fleiri urðu mörkin ekki og þriðja jafntefli Juventus í fyrstu fimm umferðunum staðreynd en meistararnir þó enn taplausir.