ÍBV að heltast úr lestinni | Magni í vondum málum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. september 2020 18:40 Það gengur hvorki né rekur hjá ÍBV þessa dagana. Vísir/ÍBV
ÍBV gerði enn eitt jafnteflið í Lengjudeild karla í knattspyrnu í dag er Leiknir Fáskrúðsfjörður heimsótti Vestmannaeyjar. Þá vann Vestri 2-1 sigur á Magna Grenivík og gestirnir aftur komnir í neðsta sæti deildarinnar. Leik ÍBV og Leikni F. lauk með markalausu jafntefli þrátt fyrir að ÍBV hafi sótt stíft undir lok leiks og meðal annars komið boltanum yfir marklínuna. Rangstaða var dæmd og markið stóð því ekki. ÍBV hefur nú leikið 16 leiki í Lengjudeildinni í sumar og gert átta jafntefli. Má segja að jafnteflin séu að gera út um vonir Eyjamanna að snúa aftur í Pepsi Max deildina að ári. Liðið er sem stendur í 4. sæti deildarinnar með 26 stig. Fram og Keflavík eru á toppnum með 32 og 30 stig ásamt því að bæði lið eiga leik til góða á ÍBV. Raunar á Keflavík tvo leiki til góða. Leiknir Reykjavík er svo í 3. sæti með 29 stig og eiga þeir einnig leik til góða á ÍBV. Í hinum leik dagsins í Lengjudeildinni bar Vestri sigur úr bítum gegn Magna á Ísafirði. Lokatölur 2-1 en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Vlademir Tufegdzic og Pétur Bjarnason komu Vestra í 2-0 áður en Tómas Örn Arnarson minnkaði muninn fyrir gestina undir lok fyrri hálfleiks. Fleiri urðu mörkin ekki og Vestri því komið í 6. sæti deildarinnar með 23 stig á meðan Magni er á botninum með aðeins níu stig. Markaskorarar fengnir af Fótbolti.net.
Fótbolti Íslenski boltinn Lengjudeildin ÍBV Leiknir Fáskrúðsfjörður Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira