Innlent

Hæglætisveður og 16 stiga hiti

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það ætti að viðra ágætlega til útivistar í dag.
Það ætti að viðra ágætlega til útivistar í dag. vísir/vilhelm

Flestir landshlutar mega búast við björtum köflum í dag að sögn Veðurstofunnar. Engu að síður gæti örlað á þaulsetinni þoku við sjávarsíðuna auk þess sem búast megi við vætu eftir hádegi suðaustan- og austanlands. Hitinn í dag verður yfirleitt á bilinu 10 til 16 stig, hlýjast inn til landsins.

Veðurfræðingur segir að dag sé áfram útlit fyrir hæglætisveður á landinu, ýmist hægviðri eða hafgola. „Í nótt létu lágský eða þokumóða á sér kræla allvíða. Með deginum ætti sólin þó að ná í gegnum skýin og flestir landshlutar ættu að fá bjarta kafla,“ segir veðurfræðingur. Sums staðar verði þó þokubakkar við sjávarsíðuna og stöku síðdegisskúrir suðaustan- og austanlands. Hiti 10 til 16 stig yfir daginn.

Vindáttin verði hins vegar vestlæg á morgun, vindhraðinn þó áfram hægur. „Nær varla 8 m/s“ eins og veðurfræðingur orðar það. Hann bætir við að í vestanáttinni sé líklegt að skýjað verði á vestanverðu landinu. Bjartara verði í öðrum landshlutum, þó þokubakkar geti látið sjá sig við ströndina. Hæsti hitinn á morgun gæti orðið um 17 stig og segir veðurfræðingurinn Suðausturland líklegast til að verða hlýjasti landshlutinn.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag og fimmtudag:

Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt. Skýjað á vestanverðu landinu. Víða bjart í öðrum landshlutum, en sums staðar þokuloft við norður- og austurströndina. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á föstudag og laugardag:

Vestlæg átt 3-10 m/s. Skýjað að mestu og lítilsháttar væta, en yfirleitt þurrt um landið austanvert. Hiti 10 til 15 stig.

Á sunnudag og mánudag:

Suðaustlæg átt með vætu, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast norðanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×