Birkir Bjarnason og félagar í Brescia eru í verulega slæmum málum í ítalska boltanum og ekki skánaði ástandið eftir 3-0 tap pgegn Sassuolo í dag.
Tilkynnt var fyrr í dag að öllum íþróttaviðburðum á Ítalíu verði frestað til 3. apríl. Birkir mun ferðast til Íslands á morgun og verður í sóttkví næstu tvær vikurnar til þess að verða klár í leikinn mikilvæga gegn Rúmeníu.
Staðan var markalaus þangað til á síðustu mínútu fyrri hálfleiks er Francesco Caputo kom heimamönnum í Sassuolo yfir.
Francesco Caputo tvöfaldaði forystuna með sínu öðru marki á 61. mínútu og stundarfjórðungi fyrir leikslok afgreiddi Jeremie Boga leikinn. Lokatölur 3-0.
Birkir spilaði allan leikinn fyrir Brescia sem er á botninum með 16 stig, níu stigum frá öruggu sæti.
Birkir og félagar fengu skell í síðasta leik fyrir hlé
