ORF líftækni opnar í dag fyrstu Bioeffect sérverslun sína á Íslandi við Hafnarstræti 19. Verslunin er staðsett í húsinu sem áður hýsti Rammagerðina en það var reist árið 1925. Verslunin verður rekin í samvinnu við danska aðila sem sagðir eru hafa mikla þekkingu á smávöruverslun í Danmörku, Finnlandi og á Íslandi.
Hafnarstræti 19 var nýlega gert upp í sinni upprunalegu mynd. Það er bogalagað í austurátt og minnir á „Straujárnið“ í New York. Verslunin er hönnuð af arkitektastofunni Basalt. Ylplast er notað bæði í innréttingar og lýsingu en um er að ræða sama efni og notað er í gróðurhús.
„Er það vísun til gróðurhúss ORF Líftækni í Grindavík þar sem byggið er ræktað sem notað er í vörur BIOEFFECT,“ segir í tilkynningu frá ORF.
Dr. Björn Örvar, einn stofnenda ORF líftækni og vísindamaðurinn á bak við húðvörumerkið, segir verslunina vonandi þá fyrstu af mörgum sé horft til lengri tíma inn í framtíðina og út fyrir landsteinana.

Í versluninni verður hægt að fá húðmælingu og almenn ráð varðandi umhirðu húðarinnar segir Elísabet Austmann, framkvæmdastjóri markaðssviðs.
Þrettán ólíkar vörur eru í vörulínu Bioeffect sem fá flokka í undirstöðu, uppbyggingu og umhirðu.
Undirstöðuvörurnar eru hannaðar fyrir daglega húðumhirðu til notkunar á hverjum degi og uppbyggingarvörurnar eru hins vegar ætlaðar til að taka húðina í gegn nokkrum sinnum á ári. Að lokum eru það umhirðuvörurnar sem undirbúa húðina fyrir EGF sem er aðalinnihaldsefni vara BIOEFFECT.
ORF líftækni sem stofnað var árið 2001 framleiðir sérvirk prótein sem notuð eru sem innihaldsefni í Bioeffect húðvörur fyrirtækisins, seld til læknisfræðilegra rannsókna og nýtt í önnur þróunarverkefni fyrirtækisins.
ORF Líftækni hefur þróað tækni til að framleiða slík prótein í byggi, en aðferðin er í tilkynningunni sögð afrakstur áratuga vísinda- og þróunarstarfs. Hjá ORF líftækni starfa nú um 70 manns.