Manuela Ósk fann ástina á dansgólfinu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 24. janúar 2020 09:02 Manuela Ósk og Jón Eyþór ná vel saman á dansgólfinu og utan þess. Einkasafn/Marínó Flóvent
Manuela Ósk Harðardóttir er ein af þeim sem keppir í Allir geta dansað á Stöð 2. Fimm pör eru eftir og er keppnin orðin virkilega spennandi. Manuela Ósk hefur blómstrað í þáttunum og í þokkabót fann hún ástina í þessu ferli. Manuela Ósk og Jón Eyþór Gottskálksson eru nú par bæði innan og utan dansgólfsins. Jón Eyþór segir í samtali við fréttastofu að hann hafi verið skotinn í Manuelu Ósk frá árinu 2002 en þá var hún einmitt valin Ungfrú Ísland. Í kvöld verður með símakosningunni safnað fyrir samtökin Ljónshjarta. Þessi samtök eru Manuelu Ósk mjög mikilvæg. Ljónshjarta eru samtök til stuðnings yngra fólki sem misst hefur maka og börnum þeirra. Sjálf missti Manuela Ósk föður sinn þegar hún var mjög ung. „Ég tala nánast aldrei um föðurmissinn samt er það líklegast það atvik sem mótaði mig mest. Pabbi minn dó þegar ég var tveggja ára og ég ólst því upp með söknuð í eitthvað sem ég aldrei þekkti,“ segir Manuela Ósk. Við fengum Manuelu Ósk til að svara nokkrum spurningum um keppnina Allir geta dansað. Hvernig hefur verið fyrir þig að taka þátt í Allir geta dansað? „Þetta ferli hefur farið fram úr mínum björtustu vonum. Ég var vissulega stressuð og óviss í upphafi - og hugsaði reglulega „hvað er ég búin að koma mér út í“ en ég er svo þakklát fyrir að hafa látið vaða, þetta er búið að vera svo skemmtileg og þroskandi lífsreynsla.“ Hvaða danstegund er í uppáhaldi hjá þér og af hverju? „Ég hef haft betra vald á ballroom dönsunum - og af þeim sem ég hef dansað þá er tangó í uppáhaldi. Mér finnst samt allir dansarnir skemmtilegir á sinn hátt, og núna er ég alveg sjúk í rúmbu sem er einmitt næsti dans hjá okkur Jóni Eyþóri.“ Hvaða atriði er í uppáhaldi? „Ég er alveg rosalega stolt af öllu sem við höfum gert, en mér leið best þegar við dönsuðum tangó. Það var í jólaþættinum þannig að sviðið var svo fallegt og hátíðlegt og ég var líka mjög skotin i kjólnum sem ég var í. Öll þessi litlu atriði skipta máli því þegar manni líður vel þá skín það í gegn í dansinum.“ Manuela Ósk og Jón Eyþór í jólaþættinum.Vísir/Marínó Flóvent Hvaða áskoranir hafa verið erfiðastar? „Líkamlegur styrkur var náttúrulega mjög lítill hjá mér í upphafi - og það var mikil áskorun að komast í gegnum langar og strangar æfingar. Ég er líka ekki vön að borða neitt voðalega mikið þannig að það voru smá viðbrigði að þurfa allt í einu að borða tvöfalt meira - til að halda orku! Svo hefur þetta tekið á mig andlega því ég hef verið mikið fjarverandi - vinna á daginn og dansa á kvöldin - og það bitnar á fjölskyldunni. En þau eru mitt stærsta stuðningslið og það er ómetanlegt að finna hvað þau eru stolt af mér.“ Hvað hefur þú lært af því að taka þátt í Allir geta dansað? „Ég hef lært að það geta allir dansað - og svo hef ég öðlast gífurlega virðingu fyrir dönsurum! Þvílíkt hæfileikafólk!“ Hvað hefur komið þér mest á óvart? „Hvað samkvæmisdans er erfið íþrótt og flókin. Maður gerir sér enga grein fyrir því sem áhorfandi.“ Hvaða áhrif hefur dansinn haft á líkamlega líðan þína? „Ef ég á að vera hreinskilin þá er líkamleg líðan akkúrat þessa stundina alveg hræðileg - ég er stíf, marin og bólgin - að drepast í baki og hné. En það er eðlilegt miðað við þessa keyrslu. Líkamlega hefur þetta samt gert kraftaverk fyrir mig - því ég var alltaf svo hokin en með dansinum hefur mér tekist að rétta úr mér og fá miklu betri líkamsstöðu.“ En andlega líðan? „Þetta er rússíbani. Ég áttaði mig samt fljótt á því að það eina sem skiptir raunverulega máli er að njóta - ekki leyfa stressinu að stela gleðinni. Ég veit að ég geri alltaf mitt besta miðað við aðstæður.“ Hvernig stuðning hefur þú fengið frá fólkinu í kringum þig? „Ómetanlegur. Ég á heimsins bestu börn sem eru svo stolt af mér. Amma mín stendur eins og klettur með mér í þessu, eins og öllu öðru - og svo á ég frábæra vini sem mynda mjög öflug klapplið. Ég gæti ekki verið heppnari.“ Hefur dansáhuginn „smitast“ í aðra fjölskyldumeðlimi eða vini? „Heldur betur - sérstaklega Elmu Rós, dóttur mína - en núna heimtar hún að fá einkatíma hjá Jóni Eyþóri og verða dansstelpa.“ Ætlar þú að halda áfram að dansa eftir þessa keppni? „Ef Jón Eyþór nennir að dansa við mig áfram.“
Allir geta dansað Ástin og lífið Tengdar fréttir Manuela og Jón unnu danseinvígið með þessum dansi Eyjólfur Kristjánsson og Telma Rut Sigurðardóttir voru send heim eftir danseinvígi í Allir geta dansað nú í kvöld. Eyfi og Telma og Manuela og Jón Eyþór voru í tveimur neðstu sætunum eftir að símakosningu lauk. 20. janúar 2020 15:00 Hundlasin Manuela og Jón Eyþór fengu frábæra dóma Manuela Ósk og Jón Eyþór dönsuðu Cha Cha við lögin Pata pata og Crazy in Love mixuð saman fyrir tæplega viku í beinni útsendingu á Stöð 2 í skemmtiþáttunum Allir geta dansað. 16. janúar 2020 12:30 Mest lesið Víðir hrasaði á þingi: Frjálsíþróttirnar björguðu Lífið Fleetwood Mac: Þegar eftirlíkingin verður betri en raunveruleikinn Gagnrýni Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Sleikurinn við Collin Farrell ógleymanlegur Lífið Hugsi yfir bílastæðamálum sem eru til skoðunar Lífið Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Menning Peaky Blinders stjarna lét sig ekki vanta á The Damned Lífið Sundlaugastarfsmenn skemmtu sér á þurru landi Lífið Uppistandarar, ráðherrar og kempur á þorrablóti Vals Lífið Tískan við þingsetningu: Snjórinn stoppaði ekki flottheitin Tíska og hönnun Fleiri fréttir Sleikurinn við Collin Farrell ógleymanlegur Hugsi yfir bílastæðamálum sem eru til skoðunar Peaky Blinders stjarna lét sig ekki vanta á The Damned Víðir hrasaði á þingi: Frjálsíþróttirnar björguðu Gulli Helga tók yfir og Sindri beið á kantinum Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Uppistandarar, ráðherrar og kempur á þorrablóti Vals „Dorrit var eiginlega Séð og heyrt stúlkan“ Drengurinn skal heita Ezra Sundlaugastarfsmenn skemmtu sér á þurru landi Syngur Cha Cha Cha á Söngvakeppninni Séð og heyrt gæti átt framhaldslíf Hvers vegna karpa menn í þartilgerðu húsi? Seldist upp á einni mínútu Var tilbúinn með tapræðu í matarboðinu Frumsýning á Vísi: Stórbrotinn sigurvilji Sigurbjörns á hvíta tjaldið Iðjuþjálfi á Nesinu fer sínar eigin leiðir í skólamat Mætti dópaður í Kastljós og laug blákalt að alþjóð Stjörnulífið: Fáklæddar, í hátísku og Palli rúmliggjandi Mætti svo gott sem nakin á rauða dregilinn Víkingur Heiðar vann til Grammy-verðlauna Beyoncé loksins verðlaunuð fyrir bestu plötuna Biðu í tvo tíma eftir „McDonalds“ borgurum sem strönduðu í tollinum „Þetta er engin þrautaganga fyrir mig“ „Á svona tímapunkti vantar mann að geta tengt við einhvern“ Krakkatían: Óvæntur gestur, söngleikur og dalmatíuhundar „Mig langaði að segja þessar sögur“ Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Sjá meira
Manuela og Jón unnu danseinvígið með þessum dansi Eyjólfur Kristjánsson og Telma Rut Sigurðardóttir voru send heim eftir danseinvígi í Allir geta dansað nú í kvöld. Eyfi og Telma og Manuela og Jón Eyþór voru í tveimur neðstu sætunum eftir að símakosningu lauk. 20. janúar 2020 15:00
Hundlasin Manuela og Jón Eyþór fengu frábæra dóma Manuela Ósk og Jón Eyþór dönsuðu Cha Cha við lögin Pata pata og Crazy in Love mixuð saman fyrir tæplega viku í beinni útsendingu á Stöð 2 í skemmtiþáttunum Allir geta dansað. 16. janúar 2020 12:30