Þrír KR-ingar mega ekki spila á Akureyri í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2020 12:30 Jón Arnór Stefánsson hefur misst af leikjum vegna meiðsla en í kvöld tekur hann út síðbúið leikbann. Vísir/Bára
KR-liðið verður án þriggja leikmanna í leik sínum á móti Þór Akureyri í kvöld en þetta er frestaður leikur frá því fyrir áramót. Leikmennirnir eru Króatinn Dino Cinac, fyrirliðinn Jón Arnór Stefánsson og Eyjólfur Ásberg Halldórsson. Leikmennirnir eru þó ekki meiddir heldur mega þeir ekki spila þennan leik. Ástæðan er sú að þeir voru ekki löglegir þegar leikurinn átti upprunalega að fara fram sem var 19. desember síðastliðinn. Dino Cinac og Eyjólfur Ásberg Halldórsson voru þá ekki komnir með leikheimild en þeir gengu til liðs við Vesturbæjarfélagið í janúar. Jón Arnór Stefánsson var vissulega með leikheimild en hann átti hins vegar að taka út leikbann í leiknum eftir að hann var rekinn út úr húsi í bikarleik í Grindavík. Leikbann Jóns Arnórs færðist ekki á milli leikja. Dino Cinac er með 12,8 stig og 6,3 fráköst að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum sínum með KR. Jón Arnór er með 7,6 stig, 2,8 fráköst og 2,8 stoðsendingar að meðaltali á leiktíðinni. Eyjólfur Ásberg Halldórsson hefur skorað 9 stig í fyrstu fjórum leikjum sínum með KR þar af fimm þeirra í fyrsta leiknum á móti Grindavík.Leikur Þórs og KR hefst klukkan 19.15 á Akureyri og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.Eftir útsendinguna frá leiknum verður sýnd heimildarmynd um Kobe Bryant. Heimildarmyndin heitir „Kobe Bryant - The Interview“ og þar ræðir Ahmad Rashad við hann um ferilinn.
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira