Ágúst: Algjört hrun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. janúar 2020 21:46 Ágúst átti erfitt með að skýra hvað gerðist hjá Valsmönnum í 4. leikhluta.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals, var ekki upplitsdjarfur eftir tap sinna manna fyrir Þór í Þorlákshöfn í kvöld. Valsmenn voru sex stigum yfir, 51-57, fyrir 4. leikhluta. Þar hrundi leikur þeirra og Þór vann 4. leikhlutann með 23 stigum, 36-13, og leikinn, 87-70. „Þetta var algjört hrun á síðustu mínútunum. Við spiluðum vel í 3. leikhluta og vorum sex stigum yfir eftir hann. Eftir fimm mínútur í 4. leikhluta voru þeir búnir að jafna. Þeir hittu auðvitað úr stórum skotum og sjálfstraustið jókst. Á meðan tókum við galin skot,“ sagði Ágúst í samtali við Vísi eftir leik. Hann vildi ekki meina að sínir menn hefðu gefist upp í 4. leikhlutanum. „Þetta var alls ekki uppgjöf. Ég veit ekki hvernig ég á að skýra þetta. Það er eins og þetta hafi verið einbeitingarskortur. Það vantaði aðeins upp á baráttu og leikgleði í 1. leikhluta en við unnum okkur inn í leikinn,“ sagði Ágúst. „Bensínið á tanknum var lítið hjá báðum liðum undir lokin. En liðið sem varð fyrra til að ná áhlaupi var líklegt til að komast í bílstjórasætið. Þeir gerðu það og við tækluðum það mjög illa.“ Valur fékk á sig 36 stig í 4. leikhluta. Ágúst var skiljanlega ekki sáttur með varnarleik Valsmanna síðustu tíu mínútur leiksins. „Það var nánast jafn mikið og þeir skoruðu í fyrri hálfleik og við vorum ekkert sérstaklega sáttir við vörnina í hálfleik. En það er óásættanlegt að fá á sig 36 stig í 4. leikhluta og eitthvað sem við erum mjög ósáttir við,“ sagði Ágúst að endingu.
Dominos-deild karla Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Sjá meira