Aron Elís og félagar í góðum málum eftir fyrri leikinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. júlí 2020 18:05 Aron Elís í leik með OB gegn Randers. Lars Ronbog/Getty Images
OB er komið með annan fótinn í Evrópudeildina á næstu leiktíð eftir frábæran 3-1 sigur á AC Horsens í dag. Danska úrvalsdeildin í fótbolta er töluvert frábrugðin þeirri íslensku að því leyti að öll lið fara í umspil að einhverju tagi. Það er umspil um hvaða lið verður meistari - þar sem Mikael Anderson og félagar í Midtjylland lönduðu sigri. Það er umspil þar sem ákveðið er hvaða lið falla og að lokum er umspil um hvaða lið komast í Evrópukeppni. Aron Elís Þrándarson og samherjar hans í OB unnu AC Horsens 3-1 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum umspilsins um sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar á næsta tímabili. Max Fenger hafði komið OB yfir þegar Aron Elís kom inn af varamannabekknum á 37. mínútu fyrir Jens Jakob Thomasen. Horsens jafnaði metin á 63. mínútu en tvö mörk frá Sander Svendsen og Mikkel Hyllegaard á 78. og 86. mínútu tryggðu OB mikilvægan sigur. Liðið er því með ágætis forystu fyrir síðari leik liðanna sem fram fer á sunnudaginn kemur. Liðið sem vinnur rimmuna mætir liðinu sem endar í 3. sæti í deildinni og sigurvegarinn þar fær sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð. Ekkert það flókið eftir allt saman.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Enski boltinn Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn Æfur og krefst rannsóknar eftir „lélegan brandara“ Sport Agnes Keleti látin eftir ótrúlegt lífshlaup Sport Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Handbolti „Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ Handbolti Friðrik um viðskilnaðinn við Keflavík: „Ákvað að standa með sjálfum mér“ Körfubolti Björgvin Karl hluti af nýrri atvinnumannadeild í CrossFit Sport Karlarnir fengu pening en konurnar sjampó, sápu og handklæði Sport Fleiri fréttir Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni „Það er betra að sakna á þennan hátt“ Segir Rashford hafa hafnað þremur tilboðum frá Sádi-Arabíu Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Fékk stóra sekt fyrir að faðma konu Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Íslandsmeistarinn Telma á leið til Skotlands Ancelotti vildi ekki tjá sig um Trent Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða algjört rugl“ Hafa aldrei tapað þegar Jesus skorar Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fyrrum landsliðsþjálfarinn aðlaður af konungi Mark ársins strax á fyrsta degi? „Ekki auðvelt að spila fyrir stórt félag eins og Arsenal“ Hákon Rafn á bekknum þegar Skytturnar skutust í annað sætið Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði stigum Sjá meira