Birkir á bekknum þegar Brescia vann botnslaginn Arnar Geir Halldórsson skrifar 19. júlí 2020 19:45 Birkir Bjarnason er leikmaður Brescia. VÍSIR/GETTY Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason sat allan tímann á varamannabekk Brescia þegar liðið fékk SPAL í heimsókn í botnslag ítölsku úrvalsdeildarinnar í dag. SPAL leiddi í leikhléi en Brescia kom til baka með tveimur mörkum Jaromir Zmrhal, það síðara í uppbótartíma venjulegs leiktíma. Þrátt fyrir sigurinn eru Birkir og félagar enn níu stigum frá öruggu sæti þegar fjórum umferðum er ólokið þar sem Genoa vann Lecce 2-1 í kvöld. Ítalski boltinn