Rivera talin hafa drukknað Sylvía Hall skrifar 10. júlí 2020 10:08 Naya Rivera er þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Glee þar sem hún fór með hlutverk klappstýrunnar Santönu Lopez. Vísir/getty
Embætti lögreglustjórans í Ventura-sýslu gengur út frá því að leik- og söngkonan Naya Rivera hafi drukknað í Piru-stöðuvatni í suðurhluta Kaliforníu. Fjögurra ára gamall sonur hennar fannst sofandi um borð í bát sem þau höfðu tekið á leigu á miðvikudag. Sonur hennar, Josey Hollis Dorsey, var í björgunarvesti þegar lögreglumenn komu að bátnum en um borð var björgunarvesti fyrir fullorðinn einstakling sem Rivera er talin hafa leigt fyrir sjálfa sig. Sonur hennar sagði lögreglumönnum að hún hafi stungið sér til sunds en ekki skilað sér aftur til baka. Mæðginin leigðu bátinn klukkan 13 að staðartíma að því er fram kemur á vef BBC. Þegar þau áttu að skila bátnum þremur tímum seinna fóru starfsmenn að leita að þeim og þegar sonur hennar fannst um borð í bátnum var lögregla kölluð til. Leitarskilyrði eru sögð vera erfið á svæðinu en eftir árangurslausa leit gengur lögregla nú út frá því að Rivera sé látin. Allt kapp sé þó lagt á að finna hana svo fjölskylda hennar geti fengið að kveðja. Hin 33 ára gamla Rivera er þekktust fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Glee. Hún hóf leiklistarferil sinn aðeins fjögurra ára gömul. Þá á hún einn son, Josey, með leikaranum Ryan Dorsey en þau skildu árið 2018.
Hollywood Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira