Inter og Hellas Verona gerðu 2-2 jafntefli í ítölsku Serie A deildinni í kvöld. Inter hefur gengið illa að ná í sigra undanfarið og er liðið dottið niður í 4. sæti eftir að hafa verið í tilbaráttu meirihluta móts.
Strax á 2. mínútu leiksins kom Darko Lazovic Verona í forystu. Inter náði ekki að svara því fyrr en í síðari hálfleik þegar Antonio Candreva jafnaði á 49. mínútu.
Federico Dimarco, leikmaður Verona, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 55. mínútu og Inter því komið í forystu. Það leit allt út fyrir að Mílanóliðið myndi ná að kreista fram sigurinn en allt kom fyrir ekki, á 86. mínútu jafnaði Miguel Veloso metin fyrir Verona með fallegu skoti og lokatölur 2-2.
Inter situr nú í 4. sæti, tíu stigum á eftir toppliði Juventus og nánast engar líkur á að liðið sé að fara að vinna deildina, þrátt fyrir að hafa verið í góðri stöðu um miðbik mótsins. Verona situr í 9. sæti með 43 stig og er enn smá von fyrir liðið að ná Evrópudeildarsæti, en þá þarf liðið að ná AC Milan að stigum sem er með 49 stig.