Alls sóttu þrjátíu manns um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu loftslagsmála í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Ráðuneytið auglýsti starfið laust til umsóknar 6. júní síðastliðinn.
Umsækjendur eru:
- Ari Arnalds Jónasson, verkfræðingur
- Azra Šehić, sérfræðingur í kynja- og mannréttindamálum
- Ásdís Ólöf Gestsdóttir
- Björgvin Harri Bjarnason, verkefnastjóri MPM
- Björn Barkarson, sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra
- Dagmar Sigurðardóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs
- Davíð Freyr Jónsson, orku- og umhverfistæknifræðingur
- Elísabet Pálmadóttir, framkvæmdastjóri
- Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri loftslagsmála hjá Umhverfisstofnun
- Eva Margrét Ævarsdóttir, lögmaður
- Eyjólfur Eyfells, verkefnastjóri
- Finnur Sveinsson, ráðgjafi
- Gunnlaug Helga Einarsdóttir, fv. sviðsstjóri
- Halla S. Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
- Hans Benjamínsson, MBA
- Helga Barðadóttir, sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra
- Hrafnhildur Bragadóttir, sviðsstjóri
- Hrönn Hrafnsdóttir, sérfræðingur
- Ingi B. Poulsen, lögfræðingur
- Ingunn Gunnarsdóttir, doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði
- Kári Jóhannsson, ráðgjafi
- Kristín Hermannsdóttir, forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands
- Lilja Guðríður Karlsdóttir, verkefnastjóri Borgarlínu
- Selja Ósk Snorradóttir, umhverfisfræðingur
- Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB
- Sigurður Loftur Thorlacius, umhverfisverkfræðingur
- Svavar Halldórsson, ráðgjafi
- Sverrir Jensson, veðurfræðingur
- Valdimar Björnsson, fjármálastjóri
- Þröstur Freyr Gylfason, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti
Í tilkynningu kemur fram að sérstök hæfnisnefnd meti hæfni umsækjenda og skili greinargerð til ráðherra sem ráði svo í embættið.
„Nefndin starfar samkvæmt reglum um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.
Nefndina skipa Magnús Jóhannesson fv. ráðuneytisstjóri, Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor og Guðný Elísabet Ingadóttir, mannauðs- og gæðastjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu,“ segir í tilkynningunni.